25. ágúst 2025

Moonboon Baby Hammock barnavagga innkölluð í Svíþjóð

25. ágúst 2025

Moonboon Baby Hammock barnavagga innkölluð í Svíþjóð

Barnavörur

Tilkynning

HMS hefur borist tilkynning í gegnum Safety Gate, evrópskt tilkynningakerfi fyrir hættulegar neytendavörur á EES-svæðinu, sem ætlað er að miðla upplýsingum milli eftirlitsstofnana innan svæðisins. Tilkynningin kemur frá sænskum yfirvöldum og varðar barnavögguna Moonboon Baby Hammock, framleidd af danska fyrirtækinu Moonboon International ApS.

Í tilkynningunni kemur fram að sænsk yfirvöld telji ákveðna hönnunarþætti vöggunnar geta skapað hættu fyrir ung börn, þar á meðal:

·       Of mikill halli og innra yfirborð þar sem barnið liggur er sveigt sem getur valdið því að þegar barnið veltir sér, festist það og eigi erfitt með öndun.

·       Ófullnægjandi hliðar sem mögulega gera það að verkum að barn geti fallið úr vöggunni.

·       Aðgengilegar snúrur sem, ef samsetning er ekki rétt, gætu skapað kyrkingarhættu.

Samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda hafnar Moonboon International ApS því að varan sé hættuleg. Þeir vísa til þess að vaggan hafi verið hönnuð með öryggi í huga og standist þeirra eigin öryggismat.

Vaggan hefur verið seld í gegnum erlendar netverslanir, þar á meðal babyland.se, og hefur einnig fundist á mörkuðum í öðrum löndum, s.s. Austurríki. Á Íslandi hefur salan verið stöðvuð þar til frekari skýringar liggja fyrir.

HMS mun áfram fylgjast með málinu í samstarfi við erlendar eftirlitsstofnanir og mun upplýsa neytendur um framvindu málsins eftir því sem upplýsingar berast.

Fyrir neðan má sjá tilkynningu um málið í Safety Gate.

Vöruheiti

Moonboon Baby Hammock

Vörumerki

Moonboon International ApS

Hver er hættan?

Mögulega hætta á meiðslum ásamt köfnunar og kyrkingarhætta

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Fylgjast með framvindu málsins.

Deildu

Nýjar tilkynningar

Frístundabúnaður

Innköllun

2. desember 2025

Hættulegt klifursett (Via Ferrata) frá Mammut

HMS hefur borist ábending í gegnum Safety Gate tilkynningakerfi um hættulegar vörur sem þarf að innkalla. Um er að ræða via ferrata klifursett frá Mammut með strikamerkjum: 7619876216519, 7619876216526, 7619876450883 og 7619876450890. Heiti varanna er Skywalker Pro Turn Via Ferrata Set, Skywalker Pro Via Ferrata Package og Skywalker Pro Via Ferrata Set Um er að ræða sett með lotunúmerunum framleitt 07/2021 og 11/2022. Aðrar lotur, þar á meðal 07/2021 og 11/2022 með viðbótinni „R“ þarfnast frekari skoðunnar. Ástæðan fyrir innkölluninni er að mikil hætta er á falli. Prófanir á búnaðinum sýna að styrkur vörunnar er ófullnægjandi, þar sem hlið karabínunar getur opnast við kraft sem er undir 1 kN (um 100 kg). Ef hliðið opnast getur klifrarinn losnað af öryggislínunni og fallið úr hæð, sem getur valdið alvarlegum eða lífshættulegum meiðslum. Ef hlið karabínunar opnast við minni kraft en samsvarar 100 kg álagi stenst hún ekki það álag sem venjulegur klifurbúnaður á að þola. Í klifri geta álagstopparnir orðið margfalt hærri, jafnvel við lítið fall, sem gerir þetta að alvarlegu öryggisfráviki. Varan uppfyllir ekki reglugerð um persónuhlífar, sem gildir í Evrópusambandinu og EES varðandi búnað sem ætlaður er til að verja fólk gegn líkamstjóni. HMS vil beina því til neytenda að hætta strax notkun á via ferrata klifursettum, kanna lotunúmer karabínanna (07/2021 og 11/2022) og hafa samband við seljanda eða innflytjanda til að fá upplýsingar um endurskoðun, skiptivöru eða endurgreiðslu. Varðandi önnur lotunúmer sem eru með viðbótinni R þá er gott að geyma búnaðinn þar til frekari fyrirmæli liggja fyrir frá framleiðanda.

Leikföng

Tilkynning

10. nóvember 2025

Eftirlíkingar af Labubu tuskudýrum óöruggar

Labubu tuskudýr hafa orðið mjög vinsæl að undanförnu. Í kjölfarið hefur myndast markaður fyrir eftirlíkingar sem kallast Lafufu. Erlendir eftirlitsaðilar og tollayfirvöld í EU hafa stöðvað fjölda sendinga með eftirlíkingum af Labubu þar sem þær uppfylltu ekki öryggiskröfur sem gilda um leikföng. Því er varað sérstaklega við eftirlíkingum á Labubu tuskudýrunum. Um daginn voru um 35.000 stykki af Lafufu gerð upptæk í Portúgal og nýlega hefur sænski tollurinn lagt hald á yfir 5.300 Lafufu tuskudýr. Í prófunum hjá sænsku efnastofnuninni fundust bönnuð efni í flestum eftirlíkingunum. Efni af tegundinni þalöt, aðallega DEHP, fundust í 5 af 7 leikföngum sem prófuð voru í Svíþjóð. Þalöt eru notuð til að mýkja plast. Þalöt geta: Truflað hormónastarfsemi Haft áhrif á frjósemi við langvarandi útsetningu Losnað úr efninu með tímanum og borist t.d. í ryksöfnun á heimilum Fólk er því sérstaklega varað við að kaupa eftirlíkingar á Labubu tuskudýrum. Eigendur þeirra eru hvattir til að farga þeim á öruggan hátt. Hvernig á að kanna hvort leikfang sé öruggt Leikföng geta almennt haft öryggisgalla. Þegar þú kaupir leikfang er gott að skoða eftirfarandi: Athugaðu CE-merkingu CE-merking staðfestir að varan uppfylli öryggiskröfur. Ekki kaupa leikfang án CE-merkingar eða leikfang með röngu CE merki til dæmis China Export merkinu. Skoðaðu upplýsingar á umbúðum Á umbúðunum á að koma fram framleiðandi, leiðbeiningar og viðvaranir á tungumáli landsins þar sem varan er seld. Prófaðu leikfangið Kreistu og togaðu leikfangið til að sjá hvort smáhlutir losni. Smáhlutir geta valdið köfnunarhættu hjá ungum börnum. Lyktaðu af leikfanginu Ef það lyktar sterkt getur það gefið til kynna hættu á skaðlegum efnum. Á netinu má sjá síður þar sem hægt er að sjá muninn á alvöru Labubu tuskudýrum og eftirlíkingum, þar á meðal á þessum síðum hér, Lafufu vs. Labubu: What’s the Difference? og How to spot a fake Labubu: Pop Mart's advice for getting the real deal - ABC News. Fyrir neðan má einnig sjá frétt frá RÚV varðandi efnagreiningarnar á eftirlíkingunum af tuskudýrinu í Svíþjóð.