26. febrúar 2026

Innköllun á ísexum frá Petzl

26. febrúar 2026

Innköllun á ísexum frá Petzl

Frístundabúnaður

Innköllun

HMS hefur borist tilkynning frá Fjallakofanum um innköllun á ákveðnum Petzl ísöxum vegna hættu á að handfangið brotnar. Samkvæmt tilkynningunni frá Petzl hafa komið upp nokkur tilfelli þar sem þessar ísaxar brotnuðu í handfanginu, sem getur skapað verulega hættu á alvarlegum meiðslum eða dauðaslysi. 

Í tilkynningunni kemur fram að tilteknar framleiðslulotur uppfylla ekki kröfur um endingu, sérstaklega við krefjandi notkun í ísklifri og þurrverkfæraklifri/bísklifri („e.dry tooling“). Bilunin getur komið án fyrirvara og án sýnilegra merkja.

Af þessum ástæðum biður Petzl alla notendur um að hætta strax að nota ísaxir sem kunna að falla undir innköllunina.

Ísaxir sem um er að ræða:

NOMIC (U021AA00) framleiddar frá desember 2017 til júní 2020.

ERGONOMIC (U022AA00) framleiddar frá júní 2018 til desember 2021. 

Vinsamlegast fylgið leiðbeiningum á heimasíðu Petzl til að athuga hvort ykkar ísöxi sé innan þeirra raða sem innköllunin nær til og, ef svo er, til að fá nýtt skaft í staðinn.

Fjallakofinn hvetur eigendur ísaxa sem falla undir innköllunina til að bregðast skjótt við og fara í gegnum ferlið beint hjá framleiðanda. Petzl er til taks fyrir allar frekari spurningar.

Vöruheiti

Ísaxir NOMIC og ERGONOMIC

Vörumerki

Petzl

Hver er hættan?

Hætta er á að handfangið brotnar. Samkvæmt tilkynningunni frá Petzl hafa komið upp nokkur tilfelli þar sem þessar ísaxar brotnuðu í handfanginu, sem getur skapað verulega hættu á alvarlegum meiðslum eða dauðaslysi. 

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Fjallakofinn hvetur eigendur ísaxa sem falla undir innköllunina til að bregðast skjótt við og fara í gegnum ferlið beint hjá framleiðanda, sjá tengil á ferlið fyrir neðan. Petzl er til taks fyrir allar frekari spurningar.

Vörunúmer

NOMIC (U021AA00) framleiddar frá desember 2017 til júní 2020.

ERGONOMIC (U022AA00) framleiddar frá júní 2018 til desember 2021. 

Deildu

Nýjar tilkynningar