9. mars 2026

IITTALA innkallar kerti

9. mars 2026

IITTALA innkallar kerti

Kerti

Heimili

Innköllun

HMS hefur fengið tilkynningu um innköllun á kertum frá IITTALA, nánari tiltekið Aalto og Kanto kertum vegna mögulegrar eldhættu.

Ástæðan innköllunar er sú að þræðir kertanna geta valdið miklum reyk, óeðlilegu vaxrennsli og of háum loga. Af þeim sökum er hætta á að kviknað geti í nærliggjandi hlutum þegar kveikt er á kertunum.

Um er að ræða ýmsar tegundir af kertunum. Nánari upplýsingar um vörunúmer og strikamerki má finna neðar í tilkynningunni. Ekki er vitað til þess að þessi kerti hafi verið seld á Íslandi en hægt er að kaupa þau í gegnum vefverslanir og erlendis.

Eigendur kertanna eru hvattir til að hætta notkun þeirra sem fyrst.

Vöruheiti

Aalto block candle og Kanto block candle

Vörumerki

IITTALA

Hver er hættan?

Ástæðan innköllunar er sú að þræðir kertanna geta valdið miklum reyk, óeðlilegu vaxrennsli og of háum loga.

Af þeim sökum er hætta á að kviknað geti í nærliggjandi hlutum þegar kveikt er á kertunum.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Hætta notkun kertanna sem fyrst.

Vörunúmer

Aalto block candle 11cm fire

Aalto block candle 11cm sand

Aalto block candle 11cm water

Aalto block candle 16cm fire

Aalto block candle 16cm sand

Aalto block candle 16cm water

Aalto block candle 8cm fire

Aalto block candle 8cm sand

Aalto block candle 8cm water

Kanto block candle 10cm ash

Kanto block candle 10cm fire

Kanto block candle 10cm sand

Kanto block candle 16cm ash

Kanto block candle 16cm fire

Kanto block candle 16cm sand

Strikamerki

6411923685115

6411923685122

6411923685139

6411923685146

6411923685153

6411923685160

6411923688123

6411923688130

6411923688147

6411923688154

6411923688161

6411923688178

6411923688185

6411923688192

6411923688208

Deildu

Nýjar tilkynningar

Frístundabúnaður

Innköllun

14. apríl 2026

Innköllun á klifurbúnaði frá Petzl

HMS hefur borist tilkynning um hættulegar ísaxir og klifurbelti frá framleiðandanum Petzl sem hafa verið sett á markað og eru nú til innköllunar. Ísaxirnar sem eru innkallaðar heita Piolets, hætta er á að handfangið getur brotnað við notkun á ísöxunum sem getur leitt til falls og meiðsla. Módelnúmerið er ERGONOMIC U022AA00 framleitt í júní 2018 til desember 2021 og NOMIC U021AA00 framleitt í desember 2017 til júní 2020. Hérlendis hafa 16 ísaxir verið í dreifingu. Þegar hefur verið brugðist við og hafa sex ísaxir verið innkallaðir. Vinna við að ná til þeirra eintaka sem eftir standa er áfram í gangi. Petzl innkallar einnig klifurbelti af gerðinni Canyon Guide  eftir að alvarlegur galli fannst í festibúnaði.  Gallinn getur valdið því að festing opnast við notkun, sem eykur hættu á falli og alvarlegum meiðslum. Um er að ræða módel C086BA00 og C086BA01 með lotunúmerum eldri en 23J9999999 999. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum HMS eru enn tvö klifurbelti í umferð sem mikilvægt er að finna og taka úr notkun hið fyrsta. Viðkomandi vörur hafa meðal annars verið til sölu hjá Fjallakofanum og Stoðtækjum. Neytendur sem hafa keypt umræddar vörur eru hvattir til að hætta notkun þeirra tafarlaust og hafa samband við söluaðila til að fá frekari upplýsingar. Nánari upplýsingar um innköllunina má finna á vef Safety Gate, sjá fyrir neðan https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport/alertDetail/10098401?lang=en https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport/alertDetail/10098339?lang=en HMS biðlar jafnframt til fyrirtækja sem kunna að hafa haft þessar klifurvörur til sölu að hafa samband og staðfesta hvort viðkomandi vörur hafi verið í þeirra vöruframboði. Öryggi notenda er ávallt í forgangi og er mikilvægt að bregðast hratt við til að koma í veg fyrir slys.