9. mars 2026

BL innkallar Range Rover 2019 og Range Rover Sport, 2019-2020 Hybrid bíla.

9. mars 2026

BL innkallar Range Rover 2019 og Range Rover Sport, 2019-2020 Hybrid bíla.

Farartæki

Bílar

Innköllun

BL hefur sent HMS tilkynningu um innköllun á Range Rover árgerð 2019 og Range Rover Sport árgerðum 2019-2020, sem eru Hybrid bílar.

Um er að ræða rafhlöður í bílunum sem framleiddar voru 11. - 12. apríl 2019 sem kunna að vera gallaðar. Gallinn kemur fram sem minnkun á getu til að keyra á rafmagni eða of mikil hitamyndun í rafhlöðu sem getur endað í bruna. Mun BL laga þessa bilun.

Aðeins eitt eintak var flutt inn af BL með rafhlöðu sem framleidd var á umræddum dögum. Eigir þú bíl sem fellur undir framangreinda lýsingu og telur mögulega að bíllinn hafi verið fluttur inn fram hjá umboði skaltu hafa samband við BL til að fullvissa þig um að þessi innköllun eigi ekki við um þig.

Vöruheiti

Range Rover árgerð 2019 og Range Rover Sport árgerðir 2019-2020, Hybrid bílar.

Vörumerki

Range Rover

Hver er hættan?

Um er að ræða rafhlöður í bílunum sem framleiddar voru 11. - 12. apríl 2019 sem kunna að vera gallaðar. Gallinn kemur fram sem minnkun á getu til að keyra á rafmagni eða of mikil hitamyndun í rafhlöðu sem getur endað í bruna.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Eigir þú bíl sem fellur undir framangreinda lýsingu og telur mögulega að bíllinn hafi verið fluttur inn fram hjá umboði skaltu hafa samband við BL til að fullvissa þig um að þessi innköllun eigi ekki við um þig.

Vörunúmer

Range Rover árgerð 2019

Ranger Rover Sport árgerðir 2019-2020, Hybrid bílar.

Deildu

Nýjar tilkynningar