13. febrúar 2026

Garðheimar innkalla Húsa- og garðaúða

13. febrúar 2026

Garðheimar innkalla Húsa- og garðaúða

Hreinsiefni og tæki

Smávara

Innköllun

Umhverfis- og orkustofnun vekur athygli á því að Garðheimar gróðurvörur ehf. hafa innkallað Húsa- og garðaúða í 400 ml málmúðabrúsum. Framleiðslunúmerið er: P31396.

Ástæða innköllunarinnar er að botninn á umbúðum vörunnar er ekki þéttur og getur vökvinn lekið út. Varan er hættuleg umhverfinu og skaðleg lífi í vatni. Umbúðir sem leka auka áhættuna á að innihaldið berist í niðurföll og þaðan út í umhverfið.

Garðheimar gróðurvörur ehf. beina því til neytenda sem keypt hafa vöruna að skila henni á næsta sölustað eða til Garðheima, Álfabakka 6, 109 Reykjavík og fá endurgreitt.

Vöruheiti

Húsa- og garðaúði

Vörumerki

Garðheimar

Hver er hættan?

Botninn á umbúðum vörunnar er ekki þéttur og getur vökvinn lekið út. Varan er hættuleg umhverfinu og skaðleg lífi í vatni. Umbúðir sem leka auka áhættuna á að innihaldið berist í niðurföll og þaðan út í umhverfið.

Lýsing á pakkningum

Úðabrúsi

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Garðheimar gróðurvörur ehf. beina því til neytenda sem keypt hafa vöruna að skila henni á næsta sölustað eða til Garðheima, Álfabakka 6, 109 Reykjavík og fá endurgreitt.

Lotunúmer

Framleiðslunúmerið er: P31396.

Deildu

Nýjar tilkynningar