28. febrúar 2026

Innköllun á leikföngum frá Stretcherz - mjúk teygjuleikföng með sandi sem fylliefni.

28. febrúar 2026

Innköllun á leikföngum frá Stretcherz - mjúk teygjuleikföng með sandi sem fylliefni.

Leikföng

Innköllun

HMS vekur athygli á innköllun á leikföngum, Stretch Super Heros, Squard Dinos, Stretchy Slammerz, Stretch Squad XXL frá Stretcherz. Leikföngin eru mismunandi að lögun, mjúk viðkomu, teygjanleg og innihalda fylliefni sem er sandur. Varan getur verið heilsuspillandi þar sem að fylliefnið gæti verið mengað af asbesti.

Vitneskja er um 5 vörunúmer á Íslandi sem þarf að innkalla. Innflutningsaðilinn, Danco, hefur hafið innköllun á þeim vörunúmerum. Innköllunin nær til eftirfarandi vörunúmera

1350085/1350093/1351053/1376624/ 1376630

Vörurnar voru seldar í ýmsum verslunum bæði á höfuðborgasvæðinu og á landsbyggðinni. Leikföngin voru meðal annars til sölu í Bónus, Húsasmiðjunni, Samkaup, Nettó, Byko, Hans og Grétu og hugsanlega á fleiri stöðum. Að minnsta kosti 800 vörur eru taldar vera í umferð á Íslandi.

Eigendur varanna eru hvattir til að taka leikfangið strax úr umferð. Setja þarf leikfangið í poka, líma fyrir hann og skila vörunni til söluaðila, heildsölunnar Danco eða fara með vöruna beint í förgun.

Hægt er að hafa samband við Danco í gegnum tölvupóst danco@danco.is eða í síma 575 0200 fyrir frekari upplýsingar. Þeir sem keyptu vöruna í gegnum verslun ,Hans og Grétu, geta haft samband við það fyrirtæki varðandi skila á vöru og endurgreiðslu.

Vöruheiti

Stretch Super Heros

Vörumerki

Stretcherz

Hver er hættan?

Varan getur verið heilsuspillandi þar sem að fylliefnið gæti verið mengað af asbesti.

Lýsing á pakkningum

Pappír og plast

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Eigendur varanna eru hvattir til að taka leikfangið strax úr umferð. Setja þarf leikfangið í poka, líma fyrir hann og skila vörunni til söluaðila, heildsölunnar Danco eða fara með vöruna beint í förgun.

Viðskiptvinir geta haft samband við Danco í gegnum tölvupóst danco@danco.is  eða í síma 575 0200 fyrir frekari upplýsingar. Þeir sem keyptu vöruna í gegnum verslunina Hans og Gréta er bent á að hafa samband við verslunina varðandi skil á vöru og endurgreiðslu.

Söluaðilar

Ýmsar verslanir á höfuborgarsvæðinu og landsbyggðinni.

Er varan CE-merkt?

Vörunúmer

1350085- 8 tegundir

1350093- 4 tegundir

1351053- 12 tegundir

1376624- 12 tegundir

1376630- 8 tegundir

Deildu

Nýjar tilkynningar