

Faratæki
Dekk
Innköllun
HMS hefur borist tilkynning frá Öskju varðandi innköllun á tveimur tegundum af Honda felgum sem seldar voru sem felguuppfærsla með nýjum Honda Civic bílum frá árinu 2017 - 2021.
Ástæðan fyrir innkölluninni er sú að mögulega voru felgurnar framleiddar án stálpressuhólka og því sé hætta á minna herslutogi felguróa. Það þýðir að hætta sé á að hjól fari undan bíl á ferð með tilheyrandi slysahættu. Mun Askja skipta út felgum, felguboltum, felguróm eins og við á í hvert skipti og hjólastilla bílinn.
Þeir sem eiga Honda Civic frá árinu 2017-2021 eru beðnir að senda tölvupóst á askja@askja.is með mynd af felgunum ásamt bílnúmeri.
Samkvæmt Öskju fylgdu þessar felgur ekki ökutækjum sem hafa verið keypt af Öskju heldur eingöngu Bernhard, sem var með Honda umboðið áður.
Vöruheiti
Honda felgur
Vörumerki
Honda Civic
Hver er hættan?
Mögulega voru felgurnar framleiddar án stálpressuhólka og því sé hætta á minna herslutogi felguróa. Það þýðir að hætta sé á að hjól fari undan bíl á ferð með tilheyrandi slysahættu
Hvað eiga viðskiptavinir að gera?
Þeir sem eiga Honda Civic frá árinu 2017-2021 eru beðnir að senda tölvupóst á askja@askja.is með mynd af felgunum ásamt bílnúmeri.
Söluaðilar
Askja en upphaflega Bernhard ehf.
Deildu











