6. mars 2026

BL innkallar BMW vegna loftpúða

6. mars 2026

BL innkallar BMW vegna loftpúða

Bílar

Faratæki

Innköllun

HMS hefur fengið tilkynningu frá BL um innköllun á BMW 1, 3, X1, X3 og M3 árgerð 2010-2015 og 3 seria og M3 árgerð 1998 - 2006.

Um er að ræða hluta af svokallaðri Takata loftpúðainnköllun. Ef loftpúðar bílsins springa út geta þeir myndað sprengiflísar úr málmi sem skjótast inn í farþegarýmið sem getur valdið alvarlegum slysum og jafnvel dauða.

Eigendur slíkra bíla skulu því hafa samband við BL og panta tíma svo BL geti skipt um loftpúða.

Vöruheiti

BMW 1, 3, X1, X3 og M3 árgerð 2010-2015 BMW 3 seria og M3 árgerð 1998 - 2006

Vörumerki

BMW

Hver er hættan?

Ef loftpúðar bílsins springa út geta þeir myndað sprengiflísar úr málmi sem skjótast inn í farþegarýmið sem getur valdið alvarlegum slysum og jafnvel dauða

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Hafa strax samband við bílaumboðið BL svo hægt sé að skipta um loftpúða

Söluaðilar

BL

Vörunúmer

BMW 1, 3, X1, X3 og M3 árgerð 2010-2015

BMW 3 seria og M3 árgerð 1998 - 2006

Deildu

Nýjar tilkynningar

Frístundabúnaður

Innköllun

14. apríl 2026

Innköllun á klifurbúnaði frá Petzl

HMS hefur borist tilkynning um hættulegar ísaxir og klifurbelti frá framleiðandanum Petzl sem hafa verið sett á markað og eru nú til innköllunar. Ísaxirnar sem eru innkallaðar heita Piolets, hætta er á að handfangið getur brotnað við notkun á ísöxunum sem getur leitt til falls og meiðsla. Módelnúmerið er ERGONOMIC U022AA00 framleitt í júní 2018 til desember 2021 og NOMIC U021AA00 framleitt í desember 2017 til júní 2020. Hérlendis hafa 16 ísaxir verið í dreifingu. Þegar hefur verið brugðist við og hafa sex ísaxir verið innkallaðir. Vinna við að ná til þeirra eintaka sem eftir standa er áfram í gangi. Petzl innkallar einnig klifurbelti af gerðinni Canyon Guide  eftir að alvarlegur galli fannst í festibúnaði.  Gallinn getur valdið því að festing opnast við notkun, sem eykur hættu á falli og alvarlegum meiðslum. Um er að ræða módel C086BA00 og C086BA01 með lotunúmerum eldri en 23J9999999 999. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum HMS eru enn tvö klifurbelti í umferð sem mikilvægt er að finna og taka úr notkun hið fyrsta. Viðkomandi vörur hafa meðal annars verið til sölu hjá Fjallakofanum og Stoðtækjum. Neytendur sem hafa keypt umræddar vörur eru hvattir til að hætta notkun þeirra tafarlaust og hafa samband við söluaðila til að fá frekari upplýsingar. Nánari upplýsingar um innköllunina má finna á vef Safety Gate, sjá fyrir neðan https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport/alertDetail/10098401?lang=en https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport/alertDetail/10098339?lang=en HMS biðlar jafnframt til fyrirtækja sem kunna að hafa haft þessar klifurvörur til sölu að hafa samband og staðfesta hvort viðkomandi vörur hafi verið í þeirra vöruframboði. Öryggi notenda er ávallt í forgangi og er mikilvægt að bregðast hratt við til að koma í veg fyrir slys.