27. febrúar 2026

Innköllun á leikfanga tesetti frá Flying Tiger

27. febrúar 2026

Innköllun á leikfanga tesetti frá Flying Tiger

Leikföng

Innköllun

HMS vill vekja athygli á innköllun á leikfanga tesetti sem selt var í Flying Tiger. Litlir hlutir á loki teketilsins geta losnað, sem og málmfestingar á kassanum. Þetta getur valdið köfnunarhættu hjá litlum börnum. Tesettið er úr málmi, vörunúmer 3058431 og öll lotunúmer eru innkölluð. Leikfangið hefur verið selt frá því í júlí 2024, alls 184 stykki hérlendis.

Eigendur eru hvattir til að taka vöruna strax úr umferð. Hægt er að skila vörunni í næstu Flying Tiger Copenhagen verslun og fá vöruna að fullu endurgreidda.

Vöruheiti

Tesett

Vörumerki

Flying Tiger Copenhagen

Hver er hættan?

Litlir hlutir á loki teketilsins geta losnað, sem og málmfestingar á kassa. Þetta getur valdið köfnunarhættu hjá litlum börnum

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Hætta notkun vörunnar sem fyrst. Skila vörunni í Flying Tiger og fá hana endurgreidda.

Söluaðilar

Flying Tiger Cophenhagen

Lotunúmer

Allar lotur

Vörunúmer

3058431

Deildu

Nýjar tilkynningar

Leikföng

Tilkynning

3. júlí 2026

Innköllun í Bretlandi á leikfanginu Squeezy Dumplings

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi. Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi, en gera má ráð fyrir að hún geti verið í umferð hérlendis, til dæmis vegna kaupa erlendis eða í gegnum netverslanir. Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu breskra yfirvalda í tengli hér fyrir neðan.