19. febrúar 2026

Innköllun á HEAD skíðaskóm

19. febrúar 2026

Innköllun á HEAD skíðaskóm

Frístundabúnaður

Innköllun

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vekur athygli á innköllun á tilteknum skíðaskóm frá HEAD. Everest flytur inn skó frá HEAD en þær framleiðslulotur sem um ræðir í þessari innköllun voru ekki til sölu hjá fyrirtækinu. Hins vegar tók Everest fjögur pör af skíðaskóm úr umferð í skíðaleigu sinni í kjölfar innköllunarinnar.

Um er að ræða skíðaskó í öllum stærðum sem framleiddir voru á árunum 2016–2022. Innköllunin nær til framleiðslulota númer 601113, 601150, 602113, 602124, 602127, 606616, 607056, 607311, 607335, 607337, 608033, 608113 og 609060. Umræddar gerðir eru ADVANT EDGE 105, ADVANT EDGE 85 R, FORMULA 120, FORMULA 120 GW, FORMULA RS 120, FORMULA RS 120 GW, NEXT EDGE 85HT, RAPTOR 40HT, RAPTOR 50HT, VECTOR 130 RS og VECTOR EVO ST.

Ástæða innköllunarinnar er sú að rifur og sprungur geta myndast í efninu á líftíma vörunnar. Slíkar skemmdir geta leitt til þess að notandi missi stjórn á skíðum sínum, sem eykur hættu á falli og meiðslum. Varan uppfyllir ekki kröfur sem gerðar eru samkvæmt almennu vöruöryggisreglugerðinni (General Product Safety Regulation).

Framleiðandi ákvað að innkalla vöruna frá neytendum. Neytendur sem eiga umrædda skíðaskó eru hvattir til að hætta notkun þeirra tafarlaust og kynna sér nánari upplýsingar og leiðbeiningar á vef framleiðanda: https://www.head.com/de_AT/recalls

Vöruheiti

Head skíðaskór framleiddir frá 2016-2022

Vörumerki

HEAD

Hver er hættan?

Rifur og sprungur geta myndast í efninu á líftíma vörunnar. Slíkar skemmdir geta leitt til þess að notandi missi stjórn á skíðum sínum, sem eykur hættu á falli og meiðslum

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Neytendur sem eiga umrædda skíðaskó eru hvattir til að hætta notkun þeirra tafarlaust og kynna sér nánari upplýsingar og leiðbeiningar á vef framleiðanda, sjá tengil neðst í fréttinni.

Lotunúmer

601113
601150
602113
602124
602127
606616
607056
607311
607335
607337
608033
608113
609060

Vörunúmer

ADVANT EDGE 105
ADVANT EDGE 85 R
FORMULA 120
FORMULA 120
FORMULA 120 GW
FORMULA RS 120
FORMULA RS 120 GW
NEXT EDGE 85HT
RAPTOR 40HT
RAPTOR 50HT
VECTOR 130 RS
VECTOR EVO ST
Vector EVO ST

Deildu

Nýjar tilkynningar

Barnabílstóll

Innköllun

21. október 2026

Innköllun á BABY-SAFE PRO barnabílstólum frá Britax Römer

Britax Römer hefur ákveðið að innkalla ákveðna BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem framleiddir voru frá 26. desember 2025 til 30. september 2026. Stólarnir hafa verið seldir bæði stakir og í setti með VARIO BASE 5Z ISOFIX-base. Stólarnir hafa meðal annars verið seldir hér á landi hjá Fífu. Ákvörðunin um innköllunina var tekin eftir að þýska óháða neytendaprófunarstofnunin Stiftung Warentest fann vandamál við prófun á stólnum þegar hann var festur á VARIO BASE 5Z í mest hallandi stöðu. Þá getur smellan á öryggisbeltinu losnað eða brotnað við framanákeyrslu, með þeim afleiðingum að barnið er ekki nægilega tryggilega fest í stólnum. Vandamálið kom ekki fram þegar stóllinn var í uppréttri stöðu á VARIO BASE 5Z eða þegar stóllinn var festur í bifreiðina með öryggisbelti. Við nánari skoðun og yfirferð hefur Britax Römer afmarkað innköllunina við BABY-SAFE PRO stóla þar sem smella öryggisbeltisins er úr tiltekinni framleiðslulotu. Neytendur sem eiga BABY-SAFE PRO stól sem framleiddur var á tímabilinu 26. desember 2025 til 30. september 2026 eru hvattir til að kanna hvort þeirra stóll falli undir innköllunina. Framleiðsludagsetningu má finna á vörumerkingu á neðri hluta stólskeljarinnar. Hægt er að kanna hvort stóllinn falli undir innköllunina á http://www.baby-safe-check.com/ Ef stóllinn fellur undir innköllunina skal hætta notkun hennar strax og hafa samband við söluaðila.   Öryggi barna er forgangsmál hjá Britax Römer og fyrirtækið segist leggja áherslu á að veita fjölskyldum upplýsingar og aðstoð meðan á innköllunarferlinu stendur.