27. febrúar 2026

Innköllun á hættulegri barnahristu

27. febrúar 2026

Innköllun á hættulegri barnahristu

Leikföng

Innköllun

HMS vekur athygli á innköllun á hættulegu leikfangi, barnahristu, sem getur valdið köfnunarhættu. Leikfangið er úr viði, getur verið í ýmsum litum og er með handfangi sem er um 11 cm langt. Barn getur sett handfangið, sem er langt, upp í munninn á sér sem getur valdið köfnun.

Leikfangið var selt í gegnum netverslunina Wish og talið er að það sé í umferð hérlendis.

Varan stóðst ekki prófun samkvæmt evrópska staðlinum EN 71-1 og er ekki í samræmi við kröfur leikfangatilskipunarinnar (Toy Safety Directive 2009/48/EC).

Eigendur leikfangsins eru hvattir til að hætta notkun leikfangsins strax og setja það í förgun.

Vöruheiti

Leikfangahrista

Hver er hættan?

Handfangið er útstætt á hristunni og getur valdið köfnunarhættu

Lýsing á pakkningum

Plastpakkning

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Hætta notkun leikfangsins sem fyrst og farga því.

Söluaðilar

Selt á netsíðunni wish.com

Deildu

Nýjar tilkynningar