24. febrúar 2026

Hekla innkallar Skoda Kodiaq og VW Amarok árgerðir 2025

24. febrúar 2026

Hekla innkallar Skoda Kodiaq og VW Amarok árgerðir 2025

Bílar

Innköllun

HMS hefur borist tilkynning frá Heklu um innköllun á Skoda Kodiaq, árgerð 2025, og VW Amarok, árgerð 2025.

Skoda Kodiaq er innkallaður vegna hættu á að hvöss brún í sætisgrind geti skemmt hliðarloftpúða ef hann springur út við árekstur. Því er vörn farþega minni en ætla mætti í árekstri. Mun Hekla setja hlíf á brúnir sætisgrindar svo loftpúðinn geti blásið eðlilega út gerist þess þörf.

VW Amarok er innkallaður þar sem rafstýrð hemlunaraðstoð gæti hætt að virka. Ef bilun verður kemur viðvörun í mælaborð, bremsupetali verður þungur og erfitt verður að mynda nægilegan kraft til að hemla. Þetta veldur lengri hemlunarvegalengd og eykur slysahættu. Hekla mun uppfæra hugbúnað sem leysir vandamálið.

Vöruheiti

Skoda Kodiaq og VW Amarok árgerð 2025

Vörumerki

Hekla

Hver er hættan?

Skoda Kodiaq er innkallaður vegna hættu á að hvöss brún í sætisgrind geti skemmt hliðarloftpúða ef hann springur út við árekstur.
VW Amarok er innkallaður þar sem rafstýrð hemlunaraðstöð gæti hætt að virka. Ef bilun verður kemur viðvörun í mælaborð, bremsupetali verður þungur og erfitt verður að mynda nægilegan kraft til að hemla.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Bregðast við innkölluninni frá Heklu

Deildu

Nýjar tilkynningar