4. júní 2025

Innköllun á grímubúningi - Franskar kartöflur

4. júní 2025

Innköllun á grímubúningi - Franskar kartöflur

Leikföng

Barnafatnaður

Innköllun

Vakin er athygli á innköllun á grímubúningi sem lítur út eins og franskar kartöflur. Búningurinn er talinn hættulegur þar sem hann er mjög eldfimur og uppfyllir ekki öryggiskröfur leikfangastaðalsins EN 71-2. Búningurinn var seldur í Partýbúðinni.

Viðskiptavinum er bent á að hætta notkun búningsins strax. Hægt er að skila búningnum í Partýbúðina gegn fullri endurgreiðslu.

Vöruheiti

FRITES

Vörumerki

P'tit Clown

Hver er hættan?

Hætta er á alvarlegum brunaáverkum ef kviknar í efni búningsins þar sem hann er mjög eldfimur.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Hætta notkun búningsins þegar í stað og skila vörunni í Partýbúðina.

Söluaðilar

Partýbúðin

Vörunúmer

23912

Strikamerki

3523160239129

Deildu

Nýjar tilkynningar