10. febrúar 2026

Tulipop innkallar USB-millistykki sem fylgja Tulipop LED lömpum.

10. febrúar 2026

Tulipop innkallar USB-millistykki sem fylgja Tulipop LED lömpum.

Barnavörur

Rafmagnstæki

Innköllun

Tulipop innkallar millistykki sem fylgja Tulipop LED lömpunum. Komið hefur í ljós öryggisgalli í USB millistykkjunum. Það getur stafað af þeim hætta þar sem styrkleiki hleðslutækisins er ekki fullnægjandi. Við ákveðið átak getur sá hluti þess sem pinnarnir, sem stungið er í tengil brotnað af og orðið eftir í tenglinum, sem getur skapað hættu á raflosti.   

Eigendur Tulipop LED lampa eru hvattir til að hætta notkun á gömlu millistykkjunum og farga þeim.

Hægt er að panta nýtt USB-millistykki hér. Það er sent án endurgjalds á næsta Dropp afhendingarstað.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum má hafa samband í gegnum tölvupóst: tulipop@tulipop.com

Vöruheiti

Millistykki á Tulipop LED lömpum

Vörumerki

Tulipop

Hver er hættan?

Styrkleiki hleðslutækisins er ekki fullnægjandi. Við ákveðið átak getur sá hluti þar sem pinnanir, sem stungið er í tengil, brotnað af og orðið eftir í tenglinum, sem getur skapað hættu á raflosti.   

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Hætta notkun millistykkjana og panta ný millistykki

Söluaðilar

Vinsamlegast hafið samband í gegnum tölvupóst, tulipop@tulipop.com, ef frekari spurningar vakna varðandi þessa innköllun.  

Deildu

Nýjar tilkynningar

Leikföng

Tilkynning

3. júlí 2026

Innköllun í Bretlandi á leikfanginu Squeezy Dumplings

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi. Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi, en gera má ráð fyrir að hún geti verið í umferð hérlendis, til dæmis vegna kaupa erlendis eða í gegnum netverslanir. Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu breskra yfirvalda í tengli hér fyrir neðan.