

Leikföng
barnavara
Innköllun
HMS vill vekja athygli á innköllun á sandlímmiðum frá Galt. Heiti vörunnar er Galt Sand Stickers Craft Kit. Um er að ræða föndursett með 6 dýralímmiðum og 4 pokum af lituðum sandi. Varan getur verið heilsuspillandi þar sem að sandurinn gæti verið mengaður af asbesti. Asbest er bannað efni og getur valdið heilsutjóni við litla útsetningu.
Varan var seld í A4 hérlendis. Alls hafa 90 eintök hafa verið seld frá árinu 2023 til apríl 2026.
Neytendur sem eiga vöruna eru beðnir um að taka vöruna strax úr umferð, farga vörunni eða skila til söluaðila. Ef sandurinn er enn í umbúðunum skal setja hann í plastpoka, loka vel með límbandi og farga vörunni með öruggum hætti. Þrífa skal svæði þar sem sandurinn hefur verið notaður með blautum klút til að forðast rykmyndun. Nota skal hanska og grímu við þrif.
Neytendur geta haft samband við A4 vegna skila eða nánari upplýsinga.
Vöruheiti
Sand Stickers Craft Kit
Vörumerki
Galt
Hver er hættan?
Varan getur verið heilsuspillandi þar sem að sandurinn gæti verið mengaður af asbesti. Asbest er bannað efni og getur valdið heilsutjóni við litla útsetningu.
Lýsing á pakkningum
Pappakassi
Hvað eiga viðskiptavinir að gera?
Neytendur sem eiga vöruna eru beðnir um að taka vöruna strax úr umferð, farga henni eða skila til söluaðila. Ef sandurinn er enn í umbúðunum skal setja hann í plastpoka, loka vel með límbandi, farga vörunni með öruggum hætti. Þrífa skal svæði þar sem sandurinn hefur verið notaður með blautum klút til að forðast rykmyndun. Nota skal hanska og grímu við þrif.
Söluaðilar
Varan var seld í A4 hérlendis og hugsanlega á öðrum stöðum.
Vörunúmer
1005467
Deildu











