




Sólgleraugu
Innköllun
HMS vekur athygli á innköllun frá Olís á fjórum tegundum af sólgleraugum sem seld hafa verið á bensínstöðvum félagsins.
Kemur fram að ástæða innköllunarinnar sé sú að gleraugun eru ekki CE-merkt og það vanti jafnframt lögboðnar upplýsingar, meðal annars um síuflokk. Vegna skorts á þessum upplýsingum er ekki unnt að staðfesta hvort gleraugun uppfylli öryggiskröfur.
Ekki er hægt að útiloka að um sé að ræða sólgleraugu í síuflokki 4. Slík gleraugu hleypa mjög litlu ljósi í gegnum linsurnar og eru ekki ætluð til notkunar við akstur bifreiða þar sem þau geta dregið verulega úr skyggni og aukið slysahættu.
Í tilkynningunni kemur fram að viðskiptavinir sem hafa keypt einhver þessara sólgleraugna eru beðnir um að hætta notkun þeirra tafarlaust og skila þeim á næstu Olís eða ÓB stöð. Við skil verður kaupverð endurgreitt að fullu eða hægt er að velja önnur sólgleraugu.
Olís biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi innköllun kann að valda og leggur áherslu á að öryggi viðskiptavina sé ávallt í fyrirrúmi.
Vöruheiti
Sólgeraugu
Vörumerki
Óþekkt
Hver er hættan?
Ekki er hægt að útiloka að um sé að ræða sólgleraugu í síuflokki 4. Slík gleraugu hleypa mjög litlu ljósi í gegnum linsurnar og eru ekki ætluð til notkunar við akstur bifreiða þar sem þau geta dregið verulega úr skyggni og aukið slysahættu.
Hvað eiga viðskiptavinir að gera?
Hætta notkun þeirra tafarlaust og skila þeim á næstu Olís eða ÓB stöð. Við skil verður kaupverð endurgreitt að fullu eða hægt er að velja önnur sólgleraugu.
Söluaðilar
Olís
Er varan CE-merkt?
Nei, varan er ekki CE merkt en ætti að vera CE merkt.
Deildu











