29. júní 2026

Innköllun á mjúkum húsgögnum fyrir börn frá bObles

29. júní 2026

Innköllun á mjúkum húsgögnum fyrir börn frá bObles

Leikföng

Barnavörur

Húsgagn

Innköllun

HMS vekur athygli á innköllun á mjúkum húsgögnum frá bObles fyrir börn, þau eru framleidd úr EVA frauði. Vörurnar hafa verið seldar í nokkrum litum og útfærslum. Vörurnar geta molnað og myndað smáa hluti. Lítil börn geta sett slíka hluti upp í sig og við það skapast köfnunarhætta. Athugið að innköllunin á ekki við um allar vörur en í einhverjum tilfellum getur efnið molnað, þetta á við vörur sem framleiddar voru á tímabilinu 2021 til mars 2026.

Varan hefur verið seld í vefverslun Coolshop hérlendis og einnig í erlendum vefverslunum.

Neytendur sem hafa keypt umræddar vörur eru beðnir um að hætta notkun þeirra sem fyrst og hafa samband við þann söluaðila sem vörurnar voru keyptar af fyrir frekari upplýsingar.
Einnig er hægt að hafa beint samband við framleiðanda varanna. Sjá tengil á innköllunarsíðu framleiðanda neðar í tilkynningunni.

Vöruheiti

Húsgögn

Vörumerki

bObles

Hver er hættan?

Vörurnar geta molnað og myndað smáa hluti. Lítil börn geta sett slíka hluti upp í sig og við það skapast köfnunarhætta.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Athugið að innköllunin á ekki við um allar vörur en í einhverjum tilfellum getur efnið molnað, þetta á við um vörur sem framleiddar voru tímabilinu 2021 til mars 2026. Eigendur eru beðnir um að hætta notkun varanna sem fyrst og hafa samband við þann söluaðila sem varan var keypt af fyrir frekari upplýsingar.
Einnig er hægt að hafa beint samband við framleiðanda varanna. Sjá tengil á innköllunarsíðu frá framleiðandi neðar í tilkynningunni.

Söluaðilar

Vefsíða Coolshop og aðrar erlendar vefsíður.

Deildu

Nýjar tilkynningar

Leikföng

Tilkynning

3. júlí 2026

Innköllun í Bretlandi á leikfanginu Squeezy Dumplings

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi. Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi, en gera má ráð fyrir að hún geti verið í umferð hérlendis, til dæmis vegna kaupa erlendis eða í gegnum netverslanir. Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu breskra yfirvalda í tengli hér fyrir neðan.

Barnabílstóll

Innköllun

4. júní 2026

Innköllun á undirstöðu fyrir Maxi-Cosi barnabílstól (FamilyFix Slide Pro base)

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) fékk tilkynningu um innköllun á undirstöðu fyrir Maxi Cosy barnabílstól (e.Maxi-Cosi FamilyFix Slide Pro base). Varan hefur verið seld í Fífu barnavöruverslun. Samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda nær innköllunin til undirstaða (e.base) með vörunúmerið 8065057110 sem framleiddar voru á tímabilinu 6. september 2025 til 24. mars 2026. Komið hefur í ljós að vísir sem sýnir hvort barnabílstóll sé rétt festur á undirstöðuna getur sýnt grænt ljós þótt stóllinn sé ekki að fullu festur. Notandi getur því talið að stóllinn sé rétt tengdur þegar svo er ekki. Við slíkar aðstæður er hætta á að stóllinn hreyfist eða losni, sem getur valdið meiðslum. Í tilkynningunni kemur fram að ekki eigi að halda áfram að nota vöruna fyrr en farið hefur verið eftir leiðbeiningum framleiðandans. Nánari upplýsingar má nálgast hjá Fífu barnavöruverslun.  Nýjar undirstöður (e.base) eru á leiðinni til landsins og mun verslunin sjá um að skipta út vörunum um leið og þær berast. Samkvæmt upplýsingum frá Fífu hefur ekki enn náðst í sjö eigendur á FamilyFix Slide Pro base vörunni.  HMS hvetur því þá sem eiga slíka undirstöðu (e.base) til að athuga hvort hún sé meðal þeirra vara sem innköllunin nær til. Þótt innköllun barnabílstóls eða fylgihluta þeirra geti valdið áhyggjum er mikilvægt að hafa í huga að innköllunarferli eru hluti af öryggiskerfi sem ætlað er að vernda neytendur og auka öryggi barna í umferðinni.