



Bílar
Innköllun
HMS hefur borist tilkynning frá BL um innköllun á fjórum undirtegundum á Land Rover tengitvinnbílum eða Plug in Hybrid. Innköllunin nær aðeins til sjö bifreiða sem BL flutti inn til landsins. Unnið er að því að hafa samband við eigendur viðkomandi bifreiða og bóka tíma í viðgerð.
- Land Rover Defender árgerðir 2021-2025- 3 bílar innkallaðir
- Range Rover Velar árgerðir 2021-2026 - 1 bíll innkallaður
- Range Rover Evoque árgerðir 2020-2026- 2 bílar innkallaðir
- Land Rover Discovery Sport árgerðir 2020-2025- 1 bíll innkallaður
Hætta er á ofhitnun háspennurafhlöðu sem getur orðið til þess að kvikni í ökutækinu. Ástæðan er óljós en BL mun skipta um háspennurafhlöðu.
Eigir þú bíl sem fellur undir framangreinda lýsingu og telur mögulega að bíllinn hafi verið fluttur inn fram hjá umboði skaltu hafa samband við BL til að fullvissa þig um að þessi innköllun eigi ekki við um þinn bíl.
Vöruheiti
Defender árgerðir 2021-2025, Velar árgerðir 2021-2026, Evoque árgerðir 2020-2026 og Discovery Sport árgerðir 2020-2025.
Vörumerki
Land Rover
Hver er hættan?
Hætta er á ofhitnun háspennurafhlöðu sem getur orðið til þess að kvikni í ökutækinu. Ástæðan er óljós en BL mun skipta um háspennurafhlöðu.
Hvað eiga viðskiptavinir að gera?
Eigir þú bíl sem fellur undir framangreinda lýsingu og telur mögulega að bíllinn hafi verið fluttur inn fram hjá umboði skaltu hafa samband við BL til að fullvissa þig um að innköllunin eigi ekki við um þinn bíl. BL mun hafa samband við eigendur bifreiðanna sem fluttir voru inn í gegnum þá og bóka tíma í viðgerð.
Söluaðilar
BL
Deildu











