25. júní 2026

Innköllun á JOIE Signature i-Level barnabílstól

25. júní 2026

Innköllun á JOIE Signature i-Level barnabílstól

Barnabílstóll

Öryggisbúnaður

Innköllun

Athygli er vakin á innköllun barnabílstólsins JOIE Signature i-Level sem er framleiddur 7. janúar 2022. Stólinn er merktur með gerðarnúmer I1510FCCBN000, serial númer á bilinu 0024666 til 0025148, strikamerki 5056080611112. Stólinn er fyrir börnum á bilinu 40–85 cm að hæð eða allt að 13 kg.

Ástæða innköllunarinnar er að prófanir hafa sýnt að bílstóllinn dregur ekki nægilega úr hættu á meiðslum við árekstur eða skyndilega hemlun ökutækis. Þetta getur aukið hættu á meiðslum barns sem situr í stólnum.

Ekki liggja fyrir upplýsingar um að þessi vara hafi verið seld hér á landi. Hins vegar er mögulegt að neytendur hafi keypt hana erlendis, pantað í gegnum vefverslanir og flutt til landsins.

Neytendur sem eiga JOIE Signature i-Level barnabílstól með framangreindu gerðarnúmeri eru hvattir til að hætta notkun hans tafarlaust og hafa samband við söluaðila eða framleiðanda til að fá upplýsingar um úrræði vegna innköllunarinnar.

Vöruheiti

JOIE Signature i-Level

Vörumerki

JOIE

Hver er hættan?

Bílstóllinn dregur ekki nægilega úr hættu á meiðslum við árekstur eða skyndilega hemlun ökutækis. Þetta getur aukið hættu á meiðslum barns sem situr í stólnum.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Neytendur sem eiga JOIE Signature i-Level barnabílstól með framangreindu gerðarnúmeri eru hvattir til að hætta notkun hans tafarlaust og hafa samband við söluaðila eða framleiðanda til að fá upplýsingar um úrræði vegna innköllunarinnar.

Söluaðilar

Hætta notkun tafarlaust og hafa samband við söluaðila eða framleiðanda.

Vörunúmer

Serial númer á bilinu 0024666 til 0025148
Vörunúmer I1510FCCBN000 Framleiddur 07/01/2022

Strikamerki

5056080611112

Deildu

Nýjar tilkynningar

Leikföng

Tilkynning

3. júlí 2026

Innköllun í Bretlandi á leikfanginu Squeezy Dumplings

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi. Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi, en gera má ráð fyrir að hún geti verið í umferð hérlendis, til dæmis vegna kaupa erlendis eða í gegnum netverslanir. Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu breskra yfirvalda í tengli hér fyrir neðan.