

Farartæki
Innköllun
Ísband hefur sent HMS tilkynningu um innköllun á Jeep tengiltvinnbílum vegna eldhættu í háspennurafhlöðu.
Innköllunin nær til eftirfarandi ökutækja:
- Jeep Wrangler 4xe, árgerðir 2020–2025
- Jeep Grand Cherokee 4xe, árgerðir 2022–2026
Stellantis, framleiðandi ökutækjanna, hefur ákveðið að framkvæma innköllun á 433 tengiltvinnjeppum til að bregðast við mögulegri eldhættu, þar af eru að minnsta kosti 91 bifreið hérlendis á innköllun. Stellantis, vinnur að lausn málsins. Eigendur verða upplýstir þegar hægt verður að bóka ökutækin í viðgerð.
Eigendum er ráðlagt að hlaða bílana ekki fyrr en viðgerð hefur farið fram og notast meira við bensín til aksturs en eldhætta minnkar eftir því sem hleðslustaða rafhlöðunnar lækkar. Jafnframt er þeim ráðlagt að leggja ökutækjunum utandyra og fjarri byggingum.
Eigendur eru hvattir til að fylgja leiðbeiningum framleiðanda þegar þær berast.
Eigendur ökutækja sem flutt hafa verið inn til landsins utan umboðs eru hvattir til að hafa samband við Ísband til að kanna hvort innköllunin nái til ökutækja þeirra og fá upplýsingar um næstu skref. HMS hvetur eigendur slíkra bíla að hafa samband við Ísband til að sjá hvort innköllunin nái til þeirra.
Vöruheiti
Jeep Wrangler 4xe, árgerðir 2020–2025 og Jeep Grand Cherokee 4xe, árgerðir 2022–2026
Vörumerki
Jeep
Hver er hættan?
Eldhætta í háspennurafhlöðu.
Hvað eiga viðskiptavinir að gera?
Eigendum viðkomandi ökutækja er ráðlagt að hlaða þau ekki fyrr en viðgerð hefur farið fram. Jafnframt er þeim ráðlagt að leggja ökutækjunum utandyra og fjarri byggingum. Eldhætta minnkar eftir því sem hleðslustaða rafhlöðunnar lækkar. Eigendur eru hvattir til að fylgja leiðbeiningum framleiðanda og verða upplýstir þegar hægt verður að bóka ökutækin í viðgerð. Eigendur ökutækja sem flutt hafa verið inn til landsins utan umboðs eru einnig hvattir til að hafa samband við Ísband til að kanna hvort innköllunin nái til ökutækja þeirra og fá upplýsingar um næstu skref.
Söluaðilar
Ísband
Deildu











