16. júlí 2026

Tvö leikföng sem seld voru á SHEIN tekin af markaði vegna köfnunarhættu

16. júlí 2026

Tvö leikföng sem seld voru á SHEIN tekin af markaði vegna köfnunarhættu

Leikföng

Innköllun

HMS vekur athygli á tveimur leikföngum sem seld voru á netversluninni SHEIN. Um er að ræða tréleikfang og nagleikfangasett fyrir börn. Bæði leikföngin geta skapað köfnunarhættu fyrir ung börn og uppfylla ekki kröfur leikfangareglugerðar.

Annað leikfangið er tréhringla sem lítur út eins og kóalabjörn, New Wooden Hand Rattle með lotunúmer PMZ117001-1P. Hitt leikfangið er nagleikfangasett með 3 nagstöngum með lotunúmer 20250805-OA . Nagstangirnar voru seldar í mismunandi litum.

Talið er að leikföngin séu í umferð á Íslandi og neytendur sem kunna að eiga þessar vörur ættu að hætta notkun þeirra strax og farga þeim.

Vöruheiti

New Wooden Hand Rattle og 3pc Baby Teething Toy sett

Hver er hættan?

Leikföngin uppfylla ekki kröfur leikfangareglugerðar og geta valdið köfnunarhættu.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Neytendur sem kunna að eiga þessar vörur ættu að hætta notkun þeirra strax og farga þeim.

Lotunúmer

Tréleikfang - New Wooden Hand Rattle - PMZ117001-1P

Nagleikfangasett-3pc Baby Teething Toy sett- Lotunúmer 20250805-OA

Deildu

Nýjar tilkynningar