1. júlí 2026

Innköllun á Happy Baby Pull String Activity Toy frá AMO Toys

1. júlí 2026

Innköllun á Happy Baby Pull String Activity Toy frá AMO Toys

Leikföng

Innköllun

Vakin er athygli á að AMO Toys AB innkallar leikfangið Happy Baby Pull String Activity Toy.

Ástæða innköllunarinnar er að smáir hlutar geta losnað af togörmum vörunnar. Ef barn setur slíka smáhluti upp í sig getur það skapað köfnunarhættu.

Neytendur sem eiga vöruna eru beðnir um að hætta notkun hennar þegar í stað og farga vörunni. Gott er að klippa togarma vörunnar til að koma í veg fyrir endurnýtingu. Varan var meðal annars seld hjá KidsCoolshop hérlendis og hugsanlega á öðrum stöðum. Hægt er að hafa samband við söluaðila varðandi skil og endurgreiðslu á vörunni.

Vöruheiti

Happy Baby Pull String Activity Toy

Vörumerki

AMO Toys Ab

Hver er hættan?

Smáir hlutar geta losnað af togörmum vörunnar. Ef barn setur slíka smáhluti upp í sig getur það skapað köfnunarhættu.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Eigendur eru beðnir um að hætta notkun vörunnar þegar í stað og farga vörunni. Gott er að klippa togarma vörunnar til að koma í veg fyrir endurnýtingu. Hægt er að hafa samband við söluaðila varðandi skil og endurgreiðslu.

Söluaðilar

Kids Coolshop

Vörunúmer

502231

Deildu

Nýjar tilkynningar

Leikföng

Tilkynning

3. júlí 2026

Innköllun í Bretlandi á leikfanginu Squeezy Dumplings

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi. Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi, en gera má ráð fyrir að hún geti verið í umferð hérlendis, til dæmis vegna kaupa erlendis eða í gegnum netverslanir. Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu breskra yfirvalda í tengli hér fyrir neðan.