19. ágúst 2026

Innköllun á sólgleraugum

19. ágúst 2026

Innköllun á sólgleraugum

Sólgleraugu

Öryggisbúnaður

Innköllun

HMS hefur borist tilkynning frá Apótekaranum og Lyf og Heilsu um að innkalla þurfi græn sólgleraugu Classic Eyewear með auðkennið China W2C. Ástæða innköllunar er að sólgleraugun eru með linsur í  síuflokki 4 (CAT 4), sem er dekksti flokkur sólgleraugnalinsa.  Engar viðvaranir fylgdu þar sem kom fram að sólgleraugun væru ekki ætluð til að notkunar við akstur.  Eins og kemur fram í tilkynningunni þá draga linsurnar verulega úr birtu og geta gert ökumönnum erfiðara fyrir að greina gangandi vegfarendur, umferðamerki eða aðrar hættur í umferðinni. Notkun þeirra við akstur getur því aukið slysahættu.  

Í tilkynningunni kemur fram að viðskiptavinir sem keypt hafa þessi sólgleraugu eru beðnir um að skila þeim í næstu verslun Apótekarans eða Lyf og Heilsu og fá vöruna endurgreidda.

Vöruheiti

Classic Eyewear með auðkennið China W2C

Hver er hættan?

Ástæða innköllunar er að sólgleraugun eru með linsur í  síuflokki 4 (CAT 4), sem er dekksti flokkur sólgleraugnalinsa.  Engar viðvaranir fylgdu þar sem kom fram að sólgleraugun væru ekki ætluð til að notkunar við akstur. Notkun þeirra við akstur getur því aukið slysahættu.  

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Viðskiptavinir eru beðnir að skila sólgleraugnum í næstu verslun Apótekarans eða Lyf og Heilsu og fá vöruna endurgreidda.

Söluaðilar

Apótekarinn og Lyf og Heilsa

Er varan CE-merkt?

Deildu

Nýjar tilkynningar

Leikföng

Tilkynning

3. júlí 2026

Innköllun í Bretlandi á leikfanginu Squeezy Dumplings

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi. Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi, en gera má ráð fyrir að hún geti verið í umferð hérlendis, til dæmis vegna kaupa erlendis eða í gegnum netverslanir. Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu breskra yfirvalda í tengli hér fyrir neðan.