10. júlí 2026

Tilkynning um varasamt leikfang, Baby Shake Rattle Toy

10. júlí 2026

Tilkynning um varasamt leikfang, Baby Shake Rattle Toy

Leikföng

Tilkynning

HMS vill vekja athygli á varasömu leikfangi, Baby Shake Rattle Toy, frá ABirdon. Um er að ræða nagleikfang með hringlu fyrir ung börn. Leikfangið getur verið í mismunandi litum. Vörunúmer leikfangsins er YJ25030212.

Leikfangið getur valdið köfnunarhættu þar sem handfangið er of langt og getur komist of langt inn í munn barns. Varan uppfyllir því ekki öryggiskröfur sem gerðar eru til leikfanga.

Leikfangið var meðal annars selt í gegnum Amazon og hugsanlega á fleiri stöðum. Talið er að varan kunni að vera í umferð á Íslandi.

Eigendur leikfangsins eru hvattir til að hætta notkun leikfangsins þegar í stað, taka það úr umferð og farga því á öruggan hátt.

Vöruheiti

Baby Shake Rattle Toy

Vörumerki

ABirdon

Hver er hættan?

Leikfangið getur valdið köfnunarhættu þar sem handfangið er of langt og getur komist of langt inn í munn barns.

Lýsing á pakkningum

Plastpakkningar

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Eigendur leikfangsins eru hvattir til að hætta notkun leikfangsins þegar í stað, taka það úr umferð og farga því á öruggan hátt.

Söluaðilar

Amazon

Vörunúmer

YJ25030212

Deildu

Nýjar tilkynningar

Barnabílstóll

Innköllun

21. október 2026

Innköllun á BABY-SAFE PRO barnabílstólum frá Britax Römer

Britax Römer hefur ákveðið að innkalla ákveðna BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem framleiddir voru frá 26. desember 2025 til 30. september 2026. Stólarnir hafa verið seldir bæði stakir og í setti með VARIO BASE 5Z ISOFIX-base. Stólarnir hafa meðal annars verið seldir hér á landi hjá Fífu. Ákvörðunin um innköllunina var tekin eftir að þýska óháða neytendaprófunarstofnunin Stiftung Warentest fann vandamál við prófun á stólnum þegar hann var festur á VARIO BASE 5Z í mest hallandi stöðu. Þá getur smellan á öryggisbeltinu losnað eða brotnað við framanákeyrslu, með þeim afleiðingum að barnið er ekki nægilega tryggilega fest í stólnum. Vandamálið kom ekki fram þegar stóllinn var í uppréttri stöðu á VARIO BASE 5Z eða þegar stóllinn var festur í bifreiðina með öryggisbelti. Við nánari skoðun og yfirferð hefur Britax Römer afmarkað innköllunina við BABY-SAFE PRO stóla þar sem smella öryggisbeltisins er úr tiltekinni framleiðslulotu. Neytendur sem eiga BABY-SAFE PRO stól sem framleiddur var á tímabilinu 26. desember 2025 til 30. september 2026 eru hvattir til að kanna hvort þeirra stóll falli undir innköllunina. Framleiðsludagsetningu má finna á vörumerkingu á neðri hluta stólskeljarinnar. Hægt er að kanna hvort stóllinn falli undir innköllunina á http://www.baby-safe-check.com/ Ef stóllinn fellur undir innköllunina skal hætta notkun hennar strax og hafa samband við söluaðila.   Öryggi barna er forgangsmál hjá Britax Römer og fyrirtækið segist leggja áherslu á að veita fjölskyldum upplýsingar og aðstoð meðan á innköllunarferlinu stendur.