7. október 2025

Enn þúsundir bíla með hættulega loftpúða á íslenskum vegum

7. október 2025

Enn þúsundir bíla með hættulega loftpúða á íslenskum vegum

Innköllun

Af þeim 36.939 bílum sem hafa verið innkallaðir á Íslandi vegna hættulegra Takata loftpúða, hafa 5.898 bílar enn ekki skilað sér í innköllun eða um 16 % bíla. Eftir umfjöllun um innköllunina í ágúst sl. jókst ásókn í loftpúðaskipti hjá bílaumboðunum, en enn eru of margir bílar sem ekki hafa verið lagfærðir. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hvetur ökumenn eindregið til að hafa tafarlaust samband við viðkomandi umboð.

Um er að ræða stærstu ökutækjainnköllun sögunnar þar sem yfir 100 milljón loftpúða hafa verið innkallaðir á heimsvísu. Loftpúðarnir geta við vissar aðstæður valdið því að sprengiflísar kastast inn í farþegarýmið þegar þeir springa út. Vitað er um að minnsta kosti 35 dauðsföll á heimsvísu af völdum loftpúðanna.

Hver eru staðan á innkölluninni hjá umboðunum?

Á mynd sem fylgir tilkynningunni má sjá frekar stöðuna á innkölluninni.

  • Askja: 4.762 bílar innkallaðir, 1.116 óviðgerðir (23% ólokið), þar á meðal Honda, þar sem alls 649 bílar eru óviðgerðir og 411 Mercedes Benz sendibílar
  • BL: 10.838 bílar innkallaðir, 2822 óviðgerður (26% ólokið). Þar á meðal Subaru, þar eru um 1528 bílar óviðgerðir og 989 bílar af BMW.
  • Brimborg: 1096 bílar innkallaðir, 233 óviðgerðir (26% ólokið), mest hjá Ford Edge og Ford Mustang, alls 81 bíll og 53 bílar óviðgerðir.
  • Hekla: 1.897 bílar innkallaðir, 758 óviðgerðir (40% ólokið), þar á meðal Mitsubishi, þar eru um 414 bílar óviðgerðir og um 261 bílar af Audi.
  • Toyota: 18.346 bílar innkallaðir, 969 óviðgerðir (5% ólokið), mest hjá Yaris, 502 bílar óviðgerðir og Corolla 279 bílar óviðgerðir.

Eigendur hvattir til að bregðast strax við

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) minnir ökumenn á að ef þeir eigi bíl sem fellur undir innköllunina, en hafi ekki enn látið skipta út loftpúðanum, þá sé mikilvægt að hafa tafarlaust samband við viðkomandi umboð. Viðgerðin er gerð eigendum að kostnaðarlausu.

Innköllunin nær til fleiri bílategunda en þeirra sem birtast í tölfræði upplýsingum frá bílaumboðunum. Innköllunin nær til alla bílategunda sem birtast á lista fyrir neðan. Ef þú átt bíl á þeim lista og bíllinn er frá árgerð 1998 til 2019 þá þarf að bregðast við innkölluninni.

Ef bíllinn var ekki fluttur inn af viðkomandi umboði þarf að taka það fram svo umboðið geti athugað hjá framleiðanda hvort loftpúðar í bílnum þínum geti verið hættulegir. 

Þetta er öryggismál. Þúsundir bíla eru enn á götunum með þessa hættulegu loftpúða og því þurfa ökumenn að bregðast við innkölluninni sem fyrst.

Vöruheiti

Takata loftpúða innköllun

Vörumerki

Acura, Audi, BMW, Cadillac, Citroën, Chevrolet, Chrysler, Daimler, Dodge/Ram, Ferrari, Ford, GMC, Honda, Infiniti, Jaguar, Jeep, Land Rover, Lexus, Lincoln, Mazda, McLaren, Mercedes-Benz, Mercury, Mitsubishi, Nissan, Pontiac, Saab, Saturn, Scion, Subaru og Toyota.

Hver er hættan?

Loftpúðarnir geta við vissar aðstæður valdið því að sprengiflísar kastast inn í farþegarýmið þegar þeir springa út og valdið dauðsfalli.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Hafa strax samband við viðkomandi umboð.

Deildu

Nýjar tilkynningar

Barnavörur

Tilkynning

25. ágúst 2025

Moonboon Baby Hammock barnavagga innkölluð í Svíþjóð

HMS hefur borist tilkynning í gegnum Safety Gate, evrópskt tilkynningakerfi fyrir hættulegar neytendavörur á EES-svæðinu, sem ætlað er að miðla upplýsingum milli eftirlitsstofnana innan svæðisins. Tilkynningin kemur frá sænskum yfirvöldum og varðar barnavögguna Moonboon Baby Hammock, framleidd af danska fyrirtækinu Moonboon International ApS. Í tilkynningunni kemur fram að sænsk yfirvöld telji ákveðna hönnunarþætti vöggunnar geta skapað hættu fyrir ung börn, þar á meðal: ·       Of mikill halli og innra yfirborð þar sem barnið liggur er sveigt sem getur valdið því að þegar barnið veltir sér, festist það og eigi erfitt með öndun. ·       Ófullnægjandi hliðar sem mögulega gera það að verkum að barn geti fallið úr vöggunni. ·       Aðgengilegar snúrur sem, ef samsetning er ekki rétt, gætu skapað kyrkingarhættu. Samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda hafnar Moonboon International ApS því að varan sé hættuleg. Þeir vísa til þess að vaggan hafi verið hönnuð með öryggi í huga og standist þeirra eigin öryggismat. Vaggan hefur verið seld í gegnum erlendar netverslanir, þar á meðal babyland.se, og hefur einnig fundist á mörkuðum í öðrum löndum, s.s. Austurríki. Á Íslandi hefur salan verið stöðvuð þar til frekari skýringar liggja fyrir. HMS mun áfram fylgjast með málinu í samstarfi við erlendar eftirlitsstofnanir og mun upplýsa neytendur um framvindu málsins eftir því sem upplýsingar berast. Fyrir neðan má sjá tilkynningu um málið í Safety Gate.