

Öryggisfatnaður
Tilkynning
HMS hefur borist tilkynning um innköllun á endurskinsvestum frá Hitopin. Vestin uppfylla ekki kröfur um endurskin og tryggja því ekki nægilegan sýnileika við aðstæður þar sem slíkt er nauðsynlegt. Af þeim sökum geta þau aukið hættu á slysum og meiðslum.
Varan var seld á netinu meðal annars í gegnum Amazon (ASIN BOB68N2Z8R) í stærðinni 20x30x8cm. Varan var seld í mismunandi litum. Tilkynningin barst HMS í gegnum tilkynningakerfi Evrópu. Varan er framleidd í Kína og uppfyllir hvorki reglugerð um persónuhlífar né evrópska staðalinn EN 20471.
Endurskinsvestin hafa verið fjarlægð af sölusíðum á netinu. HMS hvetur þá sem eiga slíkt vesti eða vita af einhverjum sem á það, til að hætta notkun þess og útvega sér nýtt endurskinsvesti.
HMS minnir jafnframt á mikilvægi þess að nota viðurkennd endurskinsmerki til að auka öryggi í umferðinni. Sjáumst.
Deildu











