
Bílar
Innköllun
HMS hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi um innköllun á Toyota Highlander 2021-2023.
Ástæða innköllunarinnar er að festing fyrir stillanlegt sætisbak virkar ekki sem skyldi og getur losnað. Það getur aukið líkur á meiðslum við árekstur þar sem farþegi er ekki fastur í sætinu. Mun Toyota skipta um gorm í stillanlegu sætisbaki sem mun laga gallann.
Eigendur eru beðnir um að hafa samband við Toyota og panta sér tíma á verkstæði sé þess þörf.
Vöruheiti
Toyota innkallar Highlander 2021-2023
Vörumerki
Toyota
Hver er hættan?
Ástæða innköllunarinnar er að festing fyrir stillanlegt sætisbak virkar ekki sem skyldi og getur losnað. Það getur aukið líkur á meiðslum við árekstur þar sem farþegi er ekki fastur í sætinu
Hvað eiga viðskiptavinir að gera?
Eigendur eru beðnir um að hafa samband við Toyota og panta sér tíma á verkstæði sé þess þörf.
Vörunúmer
Toyota Highlander 2021-2023.
Deildu











