
Bílar
Innköllun
HMS hefur fengið tilkynningu um innköllun á Jaguar Ipace 2019-2020.
Jaguar Ipace er rafbíll og er innkallaður vegna mögulegrar ofhitnunnar í háspennurafhlöðu. Ofhitnunin getur orðið það mikil að rjúki úr eða jafnvel kvikni í rafhlöðunni. Þessi ökutæki hafa verið innkölluð áður en það hefur komið í ljós að þær viðgerðir hafi ekki skilað árangri. BL mun uppfæra hugbúnað bílsins og takmarka hleðslugetu bílsins við 90% sem tímabundna lausn á meðan unnið er að varanlegri lausn.
Eru eigendur slíkra bíla hvattir til að hafa samband við BL og panta tíma í hugbúnaðaruppfærslu. Ekki er ráðlagt að hlaða meira en 90% af getu rafhlöðu á meðan beðið er eftir þjónustu BL.
Vöruheiti
Jaguar Ipace 2019-2020
Vörumerki
Jaguar
Hver er hættan?
Möguleiki á ofhitnun í háspennurafhlöðu. Ofhitnunin getur orðið það mikil að rjúki úr eða jafnvel kvikni í rafhlöðunni.
Hvað eiga viðskiptavinir að gera?
Eru eigendur bílanna hvattir til að hafa samband við BL og panta tíma í hugbúnaðaruppfærslu. Ekki er ráðlagt að hlaða meira en 90% af getu rafhlöðu á meðan beðið er eftir þjónustu BL.
Vörunúmer
Jaguar Ipace 2019-2020
Deildu











