24. mars 2026

IKEA innkallar SMÖJTRÄD kerti án ilms vegna eld- og brunahættu.

24. mars 2026

IKEA innkallar SMÖJTRÄD kerti án ilms vegna eld- og brunahættu.

Kerti

Innköllun

IKEA innkallar tvær gerðir af SMÖJTRÄD kertum án ilms, 25 cm, 4 í pakka:

  • Vörunúmer 606.131.05 – drappað
  • Vörunúmer 406.131.06 – grænt

Vörurnar voru seldar hérlendis frá 1. júní 2025 til 30. nóvember 2025.
Vegna framleiðslugalla geta sum kertin innihaldið auka búta af kveik í kertavaxinu. Það getur valdið stærri loga en eðlilegt er og skapað eld- og brunahættu. Viðskiptavinir sem eiga umrædd kerti eiga að taka þau úr umferð sem fyrst og skila þeim í IKEA verslun til að fá nýja vöru eða endurgreiðslu. Kvittun er ekki nauðsynleg.

Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuverinu hjá IKEA í síma 520 2500 og á IKEA.is.

Vöruheiti

SMÖJTRÄD kerti án ilms, 25 cm, 4 í pakka.

Vörumerki

IKEA

Hver er hættan?

Vegna framleiðslugalla geta sum kertin innihaldið auka búta af kveik í kertavaxinu. Það getur valdið stærri loga en eðlilegt er og skapað eld- og brunahættu.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Viðskiptavinir sem eiga umrædd kerti eiga að taka kertin strax úr umferð og skila þeim í IKEA verslun til að fá nýja vöru eða endurgreiðslu. Kvittun er ekki nauðsynleg. Nánari upplýsingar fást hjá IKEA í síma 520 2500 og á IKEA.is.

Vörunúmer

  • 606.131.05 – drappað
  • 406.131.06 – grænt

Deildu

Nýjar tilkynningar

Leikföng

Tilkynning

3. júlí 2026

Innköllun í Bretlandi á leikfanginu Squeezy Dumplings

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi. Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi, en gera má ráð fyrir að hún geti verið í umferð hérlendis, til dæmis vegna kaupa erlendis eða í gegnum netverslanir. Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu breskra yfirvalda í tengli hér fyrir neðan.