18. mars 2026

Hættulegt burðaskjal frá Caboo

18. mars 2026

Hættulegt burðaskjal frá Caboo

Tilkynning

HMS vill vara við notkun á burðarsjali (e.baby sling)  frá Caboo, gerð „Carrier“, sem er ætlað börnum frá 2,3kg. – 14,5 kg. Varan er úr bómullarprjónuðu efni og fáanleg í litunum "porpoise", "sage", "olive" og "denim". Burðasjölin hafa fengist á erlendum vefsíðum eins og Amazon.

Ástæðan fyrir innkölluninni er að efnið í vörunni er mjög eldfimt og getur kviknað auðveldlega í því. Notkun nálægt hita- eða logagjafa getur valdið bruna, köfnun vegna lofttegunda sem losna við brunann. Hætta er að barn geti fallið úr burðasjalinu og slasist þar sem burðaþol og stöðugleika eiginleikar burðasjalsins geta skerst.

Neytendur eru hvattir til að hætta notkun baby sling „Carrier“ frá Caboo

Vöruheiti

Baby sling

Vörumerki

Caboo

Hver er hættan?

Efnið í vörunni er mjög eldfimt og getur kviknað auðveldlega í því. Notkun nálægt hita- eða logagjafa getur valdið bruna, köfnun vegna lofttegunda sem losna við brunann. Hætta er að barn geti fallið úr burðasjalinu og slasist þar sem burðaþol og stöðugleika eiginleikar burðasjalsins geta skerst.

Lýsing á pakkningum

Pappakassi

Söluaðilar

Amazon og fleiri erlendar vefsíður

Deildu

Nýjar tilkynningar