
Leikföng
Barnavörur
Tilkynning
HMS vill vekja athygli á öryggisatriðum vegna ungbarnaróla frá KREA, gerðir AN7G96 (2032) og AM59UB (2034).
Í leiðbeiningabæklingi sem fylgdi rólunum vantar upplýsingar um hámarksuppsetningarhæð. Rólurnar má ekki setja hærra en 2,5 metra frá jörðu. Ef rólurnar eru settar upp í of mikilli hæð getur það valdið hengingarhættu við ákveðin skilyrði. Tryggja þarf einnig að fjarlægð frá aðliggjandi hlutum sé að minnsta kosti 2 metrar.
Athugið að þessi tilkynning á við um önnur vörunúmer en sambærilegar rólur sem áður hafa verið innkallaðar. Einkenni þessara róla er að KREA stendur fremst á rólunni.
Rólurnar voru seldar hjá Kids Coolshop og hugsanlega á fleiri stöðum hérlendis. Rólurnar eiga ekki lengur að vera á markaði á Íslandi.
Eigendur viðkomandi róla eru hvattir til að:
- Kanna hvort rólan sé af gerð AN7G96 (2032) eða AM59UB (2034)
- Staðfesta rétta uppsetningarhæð rólunnar, ganga úr skugga um að rólan sé ekki sett upp of hátt (<2,5m) og að næg fjarlægð sé frá nærliggjandi hlutum (2m)
- Hafa samband við söluaðila ef vafi leikur á um vöru eða uppsetningu
Deildu











