

Leikföng
Barnavörur
Tilkynning
HMS vekur athygli á að spilið Magnetic frá BIGTOYS, vörunúmer BGR5664 HB-17, hefur verið tekið af markaði. Spilið uppfyllir ekki öryggiskröfur sem gerðar eru til leikfanga. Spilið inniheldur litla segla sem eru með of háum segulstyrk.
Ef barn gleypir tvo eða fleiri segla geta þeir dregist saman í meltingarvegi og valdið alvarlegum innvortis meiðslum eins og garnastíflu eða rofi á þörmum. Talið er að spilið sé í umferð á Íslandi.
Eigendur spilsins eru hvattir til að halda spilinu frá ungum börnum.
Vöruheiti
Magnetic
Vörumerki
BIGTOYS
Hver er hættan?
Spilið inniheldur litla segla sem eru með of háum segulstyrk. Ef barn gleypir tvo eða fleiri segla geta þeir dregist saman í meltingarvegi og valdið alvarlegum innvortis meiðslum eins og garnastíflu eða rofi á þörmum.
Hvað eiga viðskiptavinir að gera?
Eigendur spilsins eru hvattir til að halda spilinu frá ungum börnum.
Vörunúmer
BGR5664
HB-17
Strikamerki
5904326465664
Deildu











