
Barnabílstóll
Barnavörur
Innköllun
HMS hefur borist tilkynning um innköllun á Joolz Aer2 bílstólafestingum vegna öryggisvanda sem getur komið upp við notkun. Samkvæmt tilkynningu frá framleiðanda Joolz geta festingarnar ekki alltaf læst sig rétt við Joolz Aer2 kerruna. Í ákveðnum tilfellum getur það valdið því að festingarnar losni við notkun, með þeim afleiðingum að bílstóll geti hallast fram eða fallið til jarðar.
Varan sem innköllunin nær til
· Vara: Joolz Aer2 bílstólafestingar
· Vörunúmer: 320400
· Raðnúmer: NL311
· EAN: 8715688096512
· Sölutímabil: júní 2025 – maí 2026
Tekið er fram í tilkynningunni að innköllunin snýr eingöngu að Joolz Aer2 bílstólafestingunum. Joolz Aer2 kerran sjálf er ekki hluti af innkölluninni og er áfram talin örugg í notkun án festinganna.
Eigendur eru beðnir um að hætta tafarlaust notkun á Joolz Aer2 bílstólafestingunum og farga vörunni á umhverfisvænan hátt. Skrá vöruna á innköllunarsíðu Joolz: https://service.joolz.com/s/car-seat-adapter-set-recall?language=en_US
Joolz gerir ráð fyrir að endurbætt útgáfa af festingunum verði fáanleg frá byrjun júlí 2026. Að sögn fyrirtækisins er öryggi barna og foreldra í algjörum forgangi og er innköllunin framkvæmd af þeim sökum. Búið er að hafa samband við flesta kaupendur, en ekki hefur náðst í eigendur fjögurra eininga.
Í tilkynningunni kemur fram að þrátt fyrir að verslun Mía sem dreifði vörunni sé lokuð er verið að koma upplýsingunum á framfæri til að tryggja að allir viðeigandi aðilar fái tilkynninguna sem fyrst. Fyrirtækið biðst velvirðingar á þeim óþægindum og áhyggjum sem þetta kann að valda.
Vöruheiti
Joolz Aer2 bílstjólafestingar
Vörumerki
Joolz
Hver er hættan?
Samkvæmt tilkynningu frá framleiðanda Joolz geta festingarnar ekki alltaf læst sig rétt við Joolz Aer2 kerruna. Í ákveðnum tilfellum getur það valdið því að festingarnar losni við notkun, með þeim afleiðingum að bílstóll geti hallast fram eða fallið til jarðar
Hvað eiga viðskiptavinir að gera?
Eigendur eru beðnir um að hætta tafarlaust notkun á Joolz Aer2 bílstólafestingunum og farga vörunni á umhverfisvænan hátt. Skrá vöruna á innköllunarsíðu Joolz: https://service.joolz.com/s/car-seat-adapter-set-recall?language=en_US
Joolz gerir ráð fyrir að endurbætt útgáfa af festingunum verði fáanleg frá byrjun júlí 2026.
Söluaðilar
Mía Verslun
Lotunúmer
NL311
Vörunúmer
320400
Strikamerki
8715688096512
Deildu











