15. maí 2026

Hættulegt barnaleikfang

15. maí 2026

Hættulegt barnaleikfang

Leikföng

Barnavörur

Tilkynning

HMS vill vekja athygli á barnaleikfangi í laginu eins og bíllykill með fjarstýringu, rafhlöðum og þremur lyklum. Leikfangið hefur verið tekið af markaði þar sem það stóðst ekki öryggiskröfur.

Leikfangið getur festst í hálsi barns og valdið köfnun.

Leikfangið var selt í gegnum Shein og hugsanlega fleiri vefverslunum. Talið er að leikfangið sé í umferð á Íslandi og eigendur leikfangsins eru hvattir til að hætta notkun leikfangsins sem fyrst.

Vöruheiti

Óþekkt

Hver er hættan?

Leikfangið getur festst í hálsi barns og valdið köfnun.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Hætta notkun leikfangsins strax.

Söluaðilar

Shein og hugsanlega fleiri vefverslunum.

Lotunúmer

XZWJJ250220

Vörunúmer

GW560045

Deildu

Nýjar tilkynningar

Barnabílstóll

Innköllun

21. október 2026

Innköllun á BABY-SAFE PRO barnabílstólum frá Britax Römer

Britax Römer hefur ákveðið að innkalla ákveðna BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem framleiddir voru frá 26. desember 2025 til 30. september 2026. Stólarnir hafa verið seldir bæði stakir og í setti með VARIO BASE 5Z ISOFIX-base. Stólarnir hafa meðal annars verið seldir hér á landi hjá Fífu. Ákvörðunin um innköllunina var tekin eftir að þýska óháða neytendaprófunarstofnunin Stiftung Warentest fann vandamál við prófun á stólnum þegar hann var festur á VARIO BASE 5Z í mest hallandi stöðu. Þá getur smellan á öryggisbeltinu losnað eða brotnað við framanákeyrslu, með þeim afleiðingum að barnið er ekki nægilega tryggilega fest í stólnum. Vandamálið kom ekki fram þegar stóllinn var í uppréttri stöðu á VARIO BASE 5Z eða þegar stóllinn var festur í bifreiðina með öryggisbelti. Við nánari skoðun og yfirferð hefur Britax Römer afmarkað innköllunina við BABY-SAFE PRO stóla þar sem smella öryggisbeltisins er úr tiltekinni framleiðslulotu. Neytendur sem eiga BABY-SAFE PRO stól sem framleiddur var á tímabilinu 26. desember 2025 til 30. september 2026 eru hvattir til að kanna hvort þeirra stóll falli undir innköllunina. Framleiðsludagsetningu má finna á vörumerkingu á neðri hluta stólskeljarinnar. Hægt er að kanna hvort stóllinn falli undir innköllunina á http://www.baby-safe-check.com/ Ef stóllinn fellur undir innköllunina skal hætta notkun hennar strax og hafa samband við söluaðila.   Öryggi barna er forgangsmál hjá Britax Römer og fyrirtækið segist leggja áherslu á að veita fjölskyldum upplýsingar og aðstoð meðan á innköllunarferlinu stendur.