15. júní 2026

Innköllun á Bébé Confort barnabílstól

15. júní 2026

Innköllun á Bébé Confort barnabílstól

Barnabílstóll

Barnavörur

Innköllun

HMS vill vekja athygli á innköllun á tilteknum barnabílstólum frá Bébé Confort sem seldir hafa verið með barnakerru sem ferðakerfi (duo) eða með barnavagni og barnakerru (trio). Ástæða innköllunarinnar er að veikleiki hefur komið í ljós í tengingu milli burðarhandfangs og skeljar barnabílstólsins. Getur önnur hlið handfangsins losnað frá stólnum þegar haldið er á honum. Þetta veldur fallhættu og mögulegum meiðslum á barni. Ekki er vitað hvort að einhver eintök séu af þessari vöru á Íslandi en varan hefur verið í sölu á erlendum vefsíðum.

Um er að ræða eftirfarandi vörur:

BBC Breeze Trio Mineral Grey – Ref. 1982085210

BBC Brume Trio Mineral Graphite – Ref. 1982153210

BBC Sunlite Duo Mineral Graphite – Ref. 1146153210

BBC Sunlite Duo Tinted Gray – Ref. 1146077210

Strikamerki: 3220660011384, 3220660011391, 3220660344833 og 3220660344840.

Innköllunin nær til allra framleiðslulota vörunnar.

Neytendur sem eiga umræddan barnabílstól eru hvattir til að hætta notkun hans tafarlaust og hafa samband við söluaðila eða framleiðanda til að fá nánari upplýsingar um úrræði.

Vöruheiti

BBC Breeze Trio / BBC Brume Trio/ BBC Sunlite Duo

Vörumerki

Bébé Confort

Hver er hættan?

Ástæða innköllunarinnar er að veikleiki hefur komið í ljós í tengingu milli burðarhandfangs og skeljar barnabílstólsins. Getur önnur hlið handfangsins losnað frá stólnum þegar haldið er á honum. Slík bilun getur valdið fallhættu og mögulegum meiðslum á barni.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Neytendur sem eiga umræddan barnabílstól eru hvattir til að hætta notkun hans tafarlaust og hafa samband við söluaðila eða framleiðanda til að fá nánari upplýsingar um úrræði.

Söluaðilar

Erlendar vefverslanir

Vörunúmer

BBC Breeze Trio Mineral Grey – Ref. 1982085210

BBC Brume Trio Mineral Graphite – Ref. 1982153210

BBC Sunlite Duo Mineral Graphite – Ref. 1146153210

BBC Sunlite Duo Tinted Gray – Ref. 1146077210

Strikamerki

3220660011384
3220660011391
3220660344833
3220660344840.

Deildu

Nýjar tilkynningar

Leikföng

Tilkynning

3. júlí 2026

Innköllun í Bretlandi á leikfanginu Squeezy Dumplings

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi. Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi, en gera má ráð fyrir að hún geti verið í umferð hérlendis, til dæmis vegna kaupa erlendis eða í gegnum netverslanir. Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu breskra yfirvalda í tengli hér fyrir neðan.