5. júní 2026

Innköllun á tréleikföngum frá Wodi

5. júní 2026

Innköllun á tréleikföngum frá Wodi

Leikföng

Barnavörur

Innköllun

Leikfangahljóðfæri frá Wodi eru innkölluð vegna hættu á að þau geti festst í hálsi barns og valdið lokun öndunarvegar.

Leikföngin eru viðarhljóðfæri sem seld eru sex saman í setti. Fjórir hlutir í settinu stóðust ekki prófanir samkvæmt leikfangastaðlinum þar af leiðandi eru vörurnar innkallaðar.

Engin slys hafa verið tilkynnt, en varan er metin geta valdið alvarlegri hættu fyrir ung börn. Því er mikilvægt að taka leikföngin úr umferð sem fyrst.

Talið er að leikfangið sé í umferð á Íslandi og eru eigendur þess beðnir um að hætta notkun þess tafarlaust og farga því. Ekki er vitað hvort leikfangið hafi verið selt í verslunum hérlendis, en það var selt í gegnum netverslunina Shein.

Vöruheiti

Leikfangahljóðfæri úr við

Vörumerki

Wodi

Hver er hættan?

Hætta er á að 4 af leikföngunum geti festst í hálsi barns og valdið lokun öndunarvegar.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Mikilvægt er að taka leikfangið úr umferð sem fyrst.

Söluaðilar

Shein

Er varan CE-merkt?

Deildu

Nýjar tilkynningar

Leikföng

Tilkynning

3. júlí 2026

Innköllun í Bretlandi á leikfanginu Squeezy Dumplings

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi. Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi, en gera má ráð fyrir að hún geti verið í umferð hérlendis, til dæmis vegna kaupa erlendis eða í gegnum netverslanir. Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu breskra yfirvalda í tengli hér fyrir neðan.