15. júní 2026

Askja innkallar Honda mótorhjól árgerð 2023-2025

15. júní 2026

Askja innkallar Honda mótorhjól árgerð 2023-2025

Mótorhjól

Farartæki

Innköllun

Askja sendi HMS tilkynningu um innköllun á Honda CL250, CL500 23, CL500 25YM og CMX500 mótorhjólum árgerð 2023-2025.

Ástæðan er að skrúfa sem festir handfangslás við efra brúarstykki er ekki nægilega hert. Skrúfan getur losnað við akstur, festst í stýrisbúnaði og valdið því að stýrið læsist. Við það getur ökumaður fallið og orðið fyrir alvarlegu slysi.

Askja mun herða skrúfuna með sérstöku verkfæri sem tryggir rétta og örugga festingu.

Eigendur slíkra hjóla eru beðnir um að hafa samband við Öskju til að fullvissa sig um að innköllun hvíli ekki á þeirra hjóli.

Vöruheiti

Mótorhjól CL250, CL500 23, CL500 25YM og CMX500 árgerðir 2023-2025.

Vörumerki

Honda

Hver er hættan?

Skrúfa sem festir handfangslás við efra brúarstykki er ekki nægilega hert. Skrúfan getur losnað við akstur, festst í stýrisbúnaði og valdið því að stýrið læsist. Við það getur ökumaður fallið og orðið fyrir alvarlegu slysi.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Eigendur slíkra hjóla eru beðnir um að hafa samband við Öskju til að fullvissa sig um að innköllun hvíli ekki á þeirra hjóli.

Söluaðilar

Askja

Deildu

Nýjar tilkynningar

Leikföng

Tilkynning

3. júlí 2026

Innköllun í Bretlandi á leikfanginu Squeezy Dumplings

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi. Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi, en gera má ráð fyrir að hún geti verið í umferð hérlendis, til dæmis vegna kaupa erlendis eða í gegnum netverslanir. Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu breskra yfirvalda í tengli hér fyrir neðan.