14. apríl 2026

Innköllun á klifurbúnaði frá Petzl

14. apríl 2026

Innköllun á klifurbúnaði frá Petzl

Frístundabúnaður

Öryggisbúnaður

Innköllun

HMS hefur borist tilkynning um hættulegar ísaxir og klifurbelti frá framleiðandanum Petzl sem hafa verið sett á markað og eru nú til innköllunar.

Ísaxirnar sem eru innkallaðar heita Piolets, hætta er á að handfangið getur brotnað við notkun á ísöxunum sem getur leitt til falls og meiðsla.

Módelnúmerið er ERGONOMIC U022AA00 framleitt í júní 2018 til desember 2021 og NOMIC U021AA00 framleitt í desember 2017 til júní 2020.

Hérlendis hafa 16 ísaxir verið í dreifingu. Þegar hefur verið brugðist við og hafa sex ísaxir verið innkallaðir. Vinna við að ná til þeirra eintaka sem eftir standa er áfram í gangi.

Petzl innkallar einnig klifurbelti af gerðinni Canyon Guide  eftir að alvarlegur galli fannst í festibúnaði.  Gallinn getur valdið því að festing opnast við notkun, sem eykur hættu á falli og alvarlegum meiðslum. Um er að ræða módel C086BA00 og C086BA01 með lotunúmerum eldri en 23J9999999 999.

Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum HMS eru enn tvö klifurbelti í umferð sem mikilvægt er að finna og taka úr notkun hið fyrsta.

Viðkomandi vörur hafa meðal annars verið til sölu hjá Fjallakofanum og Stoðtækjum. Neytendur sem hafa keypt umræddar vörur eru hvattir til að hætta notkun þeirra tafarlaust og hafa samband við söluaðila til að fá frekari upplýsingar.

Nánari upplýsingar um innköllunina má finna á vef Safety Gate, sjá fyrir neðan

https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport/alertDetail/10098401?lang=en

https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport/alertDetail/10098339?lang=en

HMS biðlar jafnframt til fyrirtækja sem kunna að hafa haft þessar klifurvörur til sölu að hafa samband og staðfesta hvort viðkomandi vörur hafi verið í þeirra vöruframboði.

Öryggi notenda er ávallt í forgangi og er mikilvægt að bregðast hratt við til að koma í veg fyrir slys.

Vöruheiti

Ísaxir(Piolets) og klifurbelti(Canyon Guide) frá Petzl

Vörumerki

Petzl

Hver er hættan?

Handfangið getur brotnað á ísöxunum og galli er í festibúnaði klifurbeltisins. Festingin getur því opnast sem veldur hættu á falli og alvarlegum meiðslum.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Kanna hvort að innköllunin eigi við um sinn búnað og hafa samband við söluaðila ef svo er. Söluaðilar veita frekari upplýsingar um innköllunina.

Söluaðilar

Fjallakofinn og Stoðtæki

Vörunúmer

Ísaxir - Piolets

Módelnúmerið er ERGONOMIC U022AA00 framleitt í júní 2018 til desember 2021 og

NOMIC U021AA00 framleitt í desember 2017 til júní 2020.

Klifurbelti - Canyon Guide

módel C086BA00 og C086BA01 með lotunúmerum eldri en 23J9999999 999.

Deildu

Nýjar tilkynningar