9. febrúar 2026

Sölubann á barnahjólreiðasæti vegna öryggisáhættu

9. febrúar 2026

Sölubann á barnahjólreiðasæti vegna öryggisáhættu

Barnavörur

Frístundabúnaður

Tilkynning

HMS vill vekja athygli á barnahjólreiðasæti, ætlað börnum með hámarksþyngd 22 kg, hefur verið tekið af markaði vegna alvarlegrar öryggisáhættu. Varan hefur verið seld á netinu, þar á meðal í gegnum Amazon (ASIN: B08L3Y8L48).

Rannsókn leiddi í ljós að festi- og öryggiskerfi sætisins er ófullnægjandi. Af þeim sökum er hætta á að barn geti dottið úr sætinu við notkun, sem getur leitt til meiðsla.

Varan uppfyllir hvorki kröfur almennu vöruöryggisreglugerðarinnar (GPSR) né evrópska staðalsins EN 14344, sem gilda um öryggi barnahjólreiðasæta. Sætið er framleitt í Portúgal og er pakkað í gagnsæjan plastpoka.

Yfirvöld hafa fyrirskipað bann við markaðssetningu vörunnar, auk annarra tilheyrandi aðgerða, gagnvart smásala. Bannið tók gildi 18. desember 2025. Neytendur sem eiga viðkomandi barnahjólreiðasæti eru hvattir til að hætta notkun þess tafarlaust og hafa samband við söluaðila til að fá nánari upplýsingar um endurgreiðslu eða önnur úrræði.

Öryggi barna er í forgangi og er þessi aðgerð liður í því að tryggja að einungis öruggar og reglugerðarsamræmdar vörur séu í umferð á Evrópumarkaði.

Vöruheiti

Child seat 27

Vörumerki

Óþekkt

Hver er hættan?

Festi- og öryggiskerfi sætisins er ófullnægjandi. Af þeim sökum er hætta á að barn geti dottið úr sætinu við notkun, sem getur leitt til meiðsla.

Lýsing á pakkningum

Plastpoki

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Eigendur eru hvattir til að hætta notkun þess tafarlaust og hafa samband við söluaðila til að fá nánari upplýsingar um endurgreiðslu eða önnur úrræði.

Söluaðilar

Amazon

Deildu

Nýjar tilkynningar