7. október 2026

Toyota innkallar RAV4 PHEV

7. október 2026

Toyota innkallar RAV4 PHEV

Bílar

Innköllun

HMS hefur borist tilkynning um innköllun á Toyota RAV4 PHEV árgerð 2026.

Vegna galla í stjórntölvu afturdrifsmótor gæti háhraðastýring mótorsins ekki virkað. Þegar ökutækið nær þeim hraða sem krefst háhraðastýringar getur tengiltvinnkerfið farið í öryggisham eða slökkt á sér. Ökutækið gæti því misst afl á miklum hraða sem eykur slysahættu.

Mun Toyota á Íslandi uppfæra stjórntölvu tengiltvinnkerfisins.

Eru eigendur slíkra ökutækja hvattir til að hafa samband við Toyota á Íslandi til að sjá hvort innköllunin eigi við ökutæki þeirra.

Deildu

Nýjar tilkynningar