


Bílar
Innköllun
Hekla hefur sent HMS tilkynningu um innköllun á Volkswagen ID Buzz ID.4 og ID.7 árgerð 2023 og 2024.
Hætta er á að íhlutir í háspennurafhlöðu uppfylli ekki gæðakröfur. Bilun gæti valdið ofhitnun á rafhlöðu þegar rafhlaðan er nálægt því að vera fullhlaðin sem gæti leitt til þess að kvikni í rafhlöðunni.
Eigendur slíkra bifreiða eru beðnir hlaða bílana ekki meira en 80% af hámarkshleðslu rafhlöðu og hafa samband við Heklu til að fullvissa sig að slíkt eigi við sinn bíl. Unnið er að gerð hugbúnaðar sem vaktar rafhlöður og hleðsluhegðun og verður hann settur upp í ökutækið þegar hann er tilbúinn. Hekla mun tilkynna eigendum um slíkt.
Deildu











