9. nóvember 2026

Hekla innkallar Audi, VW og Skoda vegna stýrisvélar

9. nóvember 2026

Hekla innkallar Audi, VW og Skoda vegna stýrisvélar

Bílar

Innköllun

Hekla sendi HMS tilkynningu um innköllun á Audi, Volkswagen og Skoda bílum vegna bilunar í stýrisvél. Raki gæti komist inn á stýrisbúnað og valdið tæringu á bolta. Brotni boltinn gæti ökumaður misst stjórn á bílnum á ferð.

Mun Hekla skipta um bolta í stýrisvél.

Ökutækin sem um ræðir eru

Audi Q3 árgerð 2018-2024

VW Caddy, Golf Sportsvan, Golf Variant 7, Tiguan, Tiguan Allspace og Touran árgerð 2014-2024

Skoda Octavia III, Superb III Karoq og Kodiaq I árgerð 2015-2024

Ef þú átt slíkan bíl skaltu hafa samband við Heklu til að athuga hvort innköllunin eigi við bílinn þinn og panta tíma í viðgerð.

Deildu

Nýjar tilkynningar

Barnabílstóll

Innköllun

21. október 2026

Innköllun á BABY-SAFE PRO barnabílstólum frá Britax Römer

Britax Römer hefur ákveðið að innkalla ákveðna BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem framleiddir voru frá 26. desember 2025 til 30. september 2026. Stólarnir hafa verið seldir bæði stakir og í setti með VARIO BASE 5Z ISOFIX-base. Stólarnir hafa meðal annars verið seldir hér á landi hjá Fífu. Ákvörðunin um innköllunina var tekin eftir að þýska óháða neytendaprófunarstofnunin Stiftung Warentest fann vandamál við prófun á stólnum þegar hann var festur á VARIO BASE 5Z í mest hallandi stöðu. Þá getur smellan á öryggisbeltinu losnað eða brotnað við framanákeyrslu, með þeim afleiðingum að barnið er ekki nægilega tryggilega fest í stólnum. Vandamálið kom ekki fram þegar stóllinn var í uppréttri stöðu á VARIO BASE 5Z eða þegar stóllinn var festur í bifreiðina með öryggisbelti. Við nánari skoðun og yfirferð hefur Britax Römer afmarkað innköllunina við BABY-SAFE PRO stóla þar sem smella öryggisbeltisins er úr tiltekinni framleiðslulotu. Neytendur sem eiga BABY-SAFE PRO stól sem framleiddur var á tímabilinu 26. desember 2025 til 30. september 2026 eru hvattir til að kanna hvort þeirra stóll falli undir innköllunina. Framleiðsludagsetningu má finna á vörumerkingu á neðri hluta stólskeljarinnar. Hægt er að kanna hvort stóllinn falli undir innköllunina á http://www.baby-safe-check.com/ Ef stóllinn fellur undir innköllunina skal hætta notkun hennar strax og hafa samband við söluaðila.   Öryggi barna er forgangsmál hjá Britax Römer og fyrirtækið segist leggja áherslu á að veita fjölskyldum upplýsingar og aðstoð meðan á innköllunarferlinu stendur.