20. nóvember 2026

Flying Tiger Copenhagen innkallar leikfangasílófón vegna köfnunarhættu

20. nóvember 2026

Flying Tiger Copenhagen innkallar leikfangasílófón vegna köfnunarhættu

Tilkynning

HMS barst tilkynning í gegnum Safety Gate um að Flying Tiger Copenhagen hafi innkallað leikfangasílófón, vörunúmer 3033045, vegna hættu á að smáir hlutar losni af leikfanginu.

Pinnar sem halda járnstöngum sílófónsins geta losnað. Lausir pinnar geta skapað köfnunarhættu fyrir börn. Innköllunin nær til allra framleiðslulota vörunnar og hefur varan verið til sölu frá október 2023.

HMS beinir þeim tilmælum til neytenda sem eiga sílófóninn að hætta notkun hans tafarlaust og skila honum í næstu verslun Flying Tiger Copenhagen. Viðskiptavinir fá kaupverðið endurgreitt.

Nánari upplýsingar um innköllunina má finna hér í tilkynningu frá Flying Tiger Copenhagen.

Vöruheiti

Leikfangahjóðfæri - sílófonn,

Vörumerki

Flying Tiger

Hver er hættan?

Pinnar sem halda járn stöngum geta ekki verið nægilega föst, sem getur leitt til þess að þeir losni og geta því valdið köfnunarhættu fyrir börn

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Viðskiptavinir ættu að hætta strax notkun vörunnar.

Vörunúmer

3033045

Deildu

Nýjar tilkynningar

Barnabílstóll

Innköllun

21. október 2026

Innköllun á BABY-SAFE PRO barnabílstólum frá Britax Römer

Britax Römer hefur ákveðið að innkalla ákveðna BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem framleiddir voru frá 26. desember 2025 til 30. september 2026. Stólarnir hafa verið seldir bæði stakir og í setti með VARIO BASE 5Z ISOFIX-base. Stólarnir hafa meðal annars verið seldir hér á landi hjá Fífu. Ákvörðunin um innköllunina var tekin eftir að þýska óháða neytendaprófunarstofnunin Stiftung Warentest fann vandamál við prófun á stólnum þegar hann var festur á VARIO BASE 5Z í mest hallandi stöðu. Þá getur smellan á öryggisbeltinu losnað eða brotnað við framanákeyrslu, með þeim afleiðingum að barnið er ekki nægilega tryggilega fest í stólnum. Vandamálið kom ekki fram þegar stóllinn var í uppréttri stöðu á VARIO BASE 5Z eða þegar stóllinn var festur í bifreiðina með öryggisbelti. Við nánari skoðun og yfirferð hefur Britax Römer afmarkað innköllunina við BABY-SAFE PRO stóla þar sem smella öryggisbeltisins er úr tiltekinni framleiðslulotu. Neytendur sem eiga BABY-SAFE PRO stól sem framleiddur var á tímabilinu 26. desember 2025 til 30. september 2026 eru hvattir til að kanna hvort þeirra stóll falli undir innköllunina. Framleiðsludagsetningu má finna á vörumerkingu á neðri hluta stólskeljarinnar. Hægt er að kanna hvort stóllinn falli undir innköllunina á http://www.baby-safe-check.com/ Ef stóllinn fellur undir innköllunina skal hætta notkun hennar strax og hafa samband við söluaðila.   Öryggi barna er forgangsmál hjá Britax Römer og fyrirtækið segist leggja áherslu á að veita fjölskyldum upplýsingar og aðstoð meðan á innköllunarferlinu stendur.