23. október 2026

23. október 2026

Bílar

Innköllun

BL sendi HMS tilkynningu um innköllun á BMW 3 series, 5 series og 7 series árgerð 2014 - 2020.

Ástæðan er sú að vatn getur komist inn í startarann og valdið skemmtum, skammhlaupi og í versta falli valdið ofhitnun sem leiðir til þess að það kviknar í.

Mun BL skipta um startara.

Eigendum slíkra bifreiða er bent á að hafa samband við BL og panta tíma í þjónustu þeim að kostnaðarlausu.

Deildu

Nýjar tilkynningar

Barnabílstóll

Innköllun

21. október 2026

Innköllun á BABY-SAFE PRO barnabílstólum frá Britax Römer

Britax Römer hefur ákveðið að innkalla ákveðna BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem framleiddir voru frá 26. desember 2025 til 30. september 2026. Stólarnir hafa verið seldir bæði stakir og í setti með VARIO BASE 5Z ISOFIX-base. Stólarnir hafa meðal annars verið seldir hér á landi hjá Fífu. Ákvörðunin um innköllunina var tekin eftir að þýska óháða neytendaprófunarstofnunin Stiftung Warentest fann vandamál við prófun á stólnum þegar hann var festur á VARIO BASE 5Z í mest hallandi stöðu. Þá getur smellan á öryggisbeltinu losnað eða brotnað við framanákeyrslu, með þeim afleiðingum að barnið er ekki nægilega tryggilega fest í stólnum. Vandamálið kom ekki fram þegar stóllinn var í uppréttri stöðu á VARIO BASE 5Z eða þegar stóllinn var festur í bifreiðina með öryggisbelti. Við nánari skoðun og yfirferð hefur Britax Römer afmarkað innköllunina við BABY-SAFE PRO stóla þar sem smella öryggisbeltisins er úr tiltekinni framleiðslulotu. Neytendur sem eiga BABY-SAFE PRO stól sem framleiddur var á tímabilinu 26. desember 2025 til 30. september 2026 eru hvattir til að kanna hvort þeirra stóll falli undir innköllunina. Framleiðsludagsetningu má finna á vörumerkingu á neðri hluta stólskeljarinnar. Hægt er að kanna hvort stóllinn falli undir innköllunina á http://www.baby-safe-check.com/ Ef stóllinn fellur undir innköllunina skal hætta notkun hennar strax og hafa samband við söluaðila.   Öryggi barna er forgangsmál hjá Britax Römer og fyrirtækið segist leggja áherslu á að veita fjölskyldum upplýsingar og aðstoð meðan á innköllunarferlinu stendur.