21. október 2026

Innköllun á BABY-SAFE PRO barnabílstólum frá Britax Römer

21. október 2026

Innköllun á BABY-SAFE PRO barnabílstólum frá Britax Römer

Barnabílstóll

Innköllun

Britax Römer hefur ákveðið að innkalla ákveðna BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem framleiddir voru frá 26. desember 2025 til 30. september 2026. Stólarnir hafa verið seldir bæði stakir og í setti með VARIO BASE 5Z ISOFIX-base. Stólarnir hafa meðal annars verið seldir hér á landi hjá Fífu.

Ákvörðunin um innköllunina var tekin eftir að þýska óháða neytendaprófunarstofnunin Stiftung Warentest fann vandamál við prófun á stólnum þegar hann var festur á VARIO BASE 5Z í mest hallandi stöðu. Þá getur smellan á öryggisbeltinu losnað eða brotnað við framanákeyrslu, með þeim afleiðingum að barnið er ekki nægilega tryggilega fest í stólnum. Vandamálið kom ekki fram þegar stóllinn var í uppréttri stöðu á VARIO BASE 5Z eða þegar stóllinn var festur í bifreiðina með öryggisbelti.

Við nánari skoðun og yfirferð hefur Britax Römer afmarkað innköllunina við BABY-SAFE PRO stóla þar sem smella öryggisbeltisins er úr tiltekinni framleiðslulotu.

Neytendur sem eiga BABY-SAFE PRO stól sem framleiddur var á tímabilinu 26. desember 2025 til 30. september 2026 eru hvattir til að kanna hvort þeirra stóll falli undir innköllunina. Framleiðsludagsetningu má finna á vörumerkingu á neðri hluta stólskeljarinnar.

Hægt er að kanna hvort stóllinn falli undir innköllunina á http://www.baby-safe-check.com/

Ef stóllinn fellur undir innköllunina skal hætta notkun hennar strax og hafa samband við söluaðila.  

Öryggi barna er forgangsmál hjá Britax Römer og fyrirtækið segist leggja áherslu á að veita fjölskyldum upplýsingar og aðstoð meðan á innköllunarferlinu stendur.

Deildu

Nýjar tilkynningar