25. september 2026

Innköllun á seðlaveski frá Primark

25. september 2026

Innköllun á seðlaveski frá Primark

Barnavörur

Innköllun

HMS vekur athygli á innköllun á veski frá Primark. Um er að ræða seðlaveski með mynd af  hundi úr 101 Dalmatíuhundi. 

Við prófanir kom í ljós að efni í veskinu inniheldur of hátt magn af þalatinu DEHP (Bis (2-ethylhexyl)) en styrkur þess mældist allt að 7,55% af þyngd vörunnar. DEHP er efni sem getur haft skaðleg áhrif á heilsu og meðal annars valdið skaða á æxlunarkerfi.

Varan uppfyllir ekki kröfur REACH-reglugerðar Evrópusambandsins um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir á efnum.

Neytendur eru hvattir til að hætta notkun á veskinu og hafa samband við Primark varðandi skil eða endurgreiðslu, eftir því sem við á.

Vöruheiti

Veski

Vörumerki

Primark

Hver er hættan?

Við prófanir kom í ljós að efni í veskinu inniheldur of hátt magn af þalatinu DEHP (Bis (2-ethylhexyl)) en styrkur þess mældist allt að 7,55% af þyngd vörunnar. DEHP er efni sem getur haft skaðleg áhrif á heilsu og meðal annars valdið skaða á æxlunarkerfi.

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Neytendur eru hvattir til að hætta notkun á veskinu og hafa samband við Primark varðandi skil eða endurgreiðslu, eftir því sem við á.

Deildu

Nýjar tilkynningar