15. september 2026

Love to Dream innkallar svefntæki fyrir ungabörn

15. september 2026

Love to Dream innkallar svefntæki fyrir ungabörn

Rafmagnstæki

Barnavörur

Innköllun

Vegna framleiðslugalla getur notkun vörunnar með tilteknum hleðslutækjum (sem fylgja ekki vörunni) valdið því að rafhlaðan ofhitni, sem leitt getur til bruna og hættu á alvarlegum brunasárum og/eða eignatjóni. Tækin voru seld á tímabilinu 2. janúar 2025 til 3. september 2026.

Innköllunin nær til eftirfarandi tækja:

Vara:
Love to Dream Sleep Machine

Gerð (Model):
LTD-SM23

Lotunúmer (Date Code):

7T12TN, 7W15TN og 8P01TN – lotunúmer má finna á hlið tækisins eða aftan á umbúðunum.

Vöruheiti

Svefntæki fyrir ungabörn

Vörumerki

Love to Dream Sleep Machine, Model LTD-SM23, Date Code: 7T12TN, 7W15TN og 8P01TN

Hver er hættan?

Vegna framleiðslugalla getur tækið ofhitnað og valdið bruna, sem leitt getur til hættu á alvarlegum brunasárum og/eða eignatjóni 

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Hætta notkun tækisins þegar í stað og hafa samband við söluaðila

Söluaðilar

Elko og Kara Kids

Deildu

Nýjar tilkynningar

Barnabílstóll

Innköllun

21. október 2026

Innköllun á BABY-SAFE PRO barnabílstólum frá Britax Römer

Britax Römer hefur ákveðið að innkalla ákveðna BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem framleiddir voru frá 26. desember 2025 til 30. september 2026. Stólarnir hafa verið seldir bæði stakir og í setti með VARIO BASE 5Z ISOFIX-base. Stólarnir hafa meðal annars verið seldir hér á landi hjá Fífu. Ákvörðunin um innköllunina var tekin eftir að þýska óháða neytendaprófunarstofnunin Stiftung Warentest fann vandamál við prófun á stólnum þegar hann var festur á VARIO BASE 5Z í mest hallandi stöðu. Þá getur smellan á öryggisbeltinu losnað eða brotnað við framanákeyrslu, með þeim afleiðingum að barnið er ekki nægilega tryggilega fest í stólnum. Vandamálið kom ekki fram þegar stóllinn var í uppréttri stöðu á VARIO BASE 5Z eða þegar stóllinn var festur í bifreiðina með öryggisbelti. Við nánari skoðun og yfirferð hefur Britax Römer afmarkað innköllunina við BABY-SAFE PRO stóla þar sem smella öryggisbeltisins er úr tiltekinni framleiðslulotu. Neytendur sem eiga BABY-SAFE PRO stól sem framleiddur var á tímabilinu 26. desember 2025 til 30. september 2026 eru hvattir til að kanna hvort þeirra stóll falli undir innköllunina. Framleiðsludagsetningu má finna á vörumerkingu á neðri hluta stólskeljarinnar. Hægt er að kanna hvort stóllinn falli undir innköllunina á http://www.baby-safe-check.com/ Ef stóllinn fellur undir innköllunina skal hætta notkun hennar strax og hafa samband við söluaðila.   Öryggi barna er forgangsmál hjá Britax Römer og fyrirtækið segist leggja áherslu á að veita fjölskyldum upplýsingar og aðstoð meðan á innköllunarferlinu stendur.