16. október 2026

Elko innkallar rafmagnsofn, APT Cozy, 2000W, vegna brunahættu.

16. október 2026

Elko innkallar rafmagnsofn, APT Cozy, 2000W, vegna brunahættu.

Rafmagn

Rafmagnstæki

Innköllun

Meginmál:

Vegna brunahættu innkallar Elko APT Cozy, 2000W rafmagnsofna með tilteknu vörunúmeri. Ofnarnir voru seld á tímabilinu 23. desember 2023 til 23. apríl 2026.

Innköllunin nær til eftirfarandi tækja:

Vara:
Rafmagnsofn, APT Cozy, 2000W

Gerð (Model):
Apt 31689

Vörunúmer:

EAN 5722000316893

 

Mikilvægt- eftirfarandi þarf að gera:

  1. Hætta strax notkun á ofninum og taka hana úr sambandi.  
  2. Skila ofninum í næstu verslun Elko eða hafa samband við þjónustuver fyrirtækisins.
  3. Viðskiptavinir eiga rétt á endurgreiðslu eða nýrri vöru.

Vöruheiti

Rafmagnsofn

Vörumerki

APT Cozy, 2000W, Apt 31689

Hver er hættan?

Brunahætta sem leitt getur til eldsvoða, brunasára og/eða eignatjóns  

Hvað eiga viðskiptavinir að gera?

Hætta notkun ofnsins þegar í stað og hafa samband við söluaðila

Söluaðilar

ELKO

Vörunúmer

EAN 5722000316893

Deildu

Nýjar tilkynningar

Barnabílstóll

Innköllun

21. október 2026

Innköllun á BABY-SAFE PRO barnabílstólum frá Britax Römer

Britax Römer hefur ákveðið að innkalla ákveðna BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem framleiddir voru frá 26. desember 2025 til 30. september 2026. Stólarnir hafa verið seldir bæði stakir og í setti með VARIO BASE 5Z ISOFIX-base. Stólarnir hafa meðal annars verið seldir hér á landi hjá Fífu. Ákvörðunin um innköllunina var tekin eftir að þýska óháða neytendaprófunarstofnunin Stiftung Warentest fann vandamál við prófun á stólnum þegar hann var festur á VARIO BASE 5Z í mest hallandi stöðu. Þá getur smellan á öryggisbeltinu losnað eða brotnað við framanákeyrslu, með þeim afleiðingum að barnið er ekki nægilega tryggilega fest í stólnum. Vandamálið kom ekki fram þegar stóllinn var í uppréttri stöðu á VARIO BASE 5Z eða þegar stóllinn var festur í bifreiðina með öryggisbelti. Við nánari skoðun og yfirferð hefur Britax Römer afmarkað innköllunina við BABY-SAFE PRO stóla þar sem smella öryggisbeltisins er úr tiltekinni framleiðslulotu. Neytendur sem eiga BABY-SAFE PRO stól sem framleiddur var á tímabilinu 26. desember 2025 til 30. september 2026 eru hvattir til að kanna hvort þeirra stóll falli undir innköllunina. Framleiðsludagsetningu má finna á vörumerkingu á neðri hluta stólskeljarinnar. Hægt er að kanna hvort stóllinn falli undir innköllunina á http://www.baby-safe-check.com/ Ef stóllinn fellur undir innköllunina skal hætta notkun hennar strax og hafa samband við söluaðila.   Öryggi barna er forgangsmál hjá Britax Römer og fyrirtækið segist leggja áherslu á að veita fjölskyldum upplýsingar og aðstoð meðan á innköllunarferlinu stendur.