9. nóvember 2026

Hekla innkallar VW vegna eldhættu

9. nóvember 2026

Hekla innkallar VW vegna eldhættu

Bílar

Innköllun

Hekla hefur sent HMS tilkynningu um innköllun á Volkswagen ID.4 og ID.7 árgerð 2024 og 2025.

Hætta er á að íhlutir í háspennurafhlöðu uppfylli ekki gæðakröfur. Bilun gæti valdið ofhitnun á rafhlöðu þegar rafhlaðan er nálægt því að vera fullhlaðin sem gæti leitt til þess að kvikni í rafhlöðunni.

Hekla mun lesa gögn frá háspennurafhlöðu til að meta hvort aðgerða sé þörf. Eigendur eru beðnir um að takmarka hleðslu rafhlöðunnar við hámark 80% þar til aflestur hefur farið fram.

Eigendur slíkra bifreiða eru beðnir að hafa samband við Heklu og bóka tíma í aflestur.

Deildu

Nýjar tilkynningar

Barnabílstóll

Innköllun

21. október 2026

Innköllun á BABY-SAFE PRO barnabílstólum frá Britax Römer

Britax Römer hefur ákveðið að innkalla ákveðna BABY-SAFE PRO barnabílstóla sem framleiddir voru frá 26. desember 2025 til 30. september 2026. Stólarnir hafa verið seldir bæði stakir og í setti með VARIO BASE 5Z ISOFIX-base. Stólarnir hafa meðal annars verið seldir hér á landi hjá Fífu. Ákvörðunin um innköllunina var tekin eftir að þýska óháða neytendaprófunarstofnunin Stiftung Warentest fann vandamál við prófun á stólnum þegar hann var festur á VARIO BASE 5Z í mest hallandi stöðu. Þá getur smellan á öryggisbeltinu losnað eða brotnað við framanákeyrslu, með þeim afleiðingum að barnið er ekki nægilega tryggilega fest í stólnum. Vandamálið kom ekki fram þegar stóllinn var í uppréttri stöðu á VARIO BASE 5Z eða þegar stóllinn var festur í bifreiðina með öryggisbelti. Við nánari skoðun og yfirferð hefur Britax Römer afmarkað innköllunina við BABY-SAFE PRO stóla þar sem smella öryggisbeltisins er úr tiltekinni framleiðslulotu. Neytendur sem eiga BABY-SAFE PRO stól sem framleiddur var á tímabilinu 26. desember 2025 til 30. september 2026 eru hvattir til að kanna hvort þeirra stóll falli undir innköllunina. Framleiðsludagsetningu má finna á vörumerkingu á neðri hluta stólskeljarinnar. Hægt er að kanna hvort stóllinn falli undir innköllunina á http://www.baby-safe-check.com/ Ef stóllinn fellur undir innköllunina skal hætta notkun hennar strax og hafa samband við söluaðila.   Öryggi barna er forgangsmál hjá Britax Römer og fyrirtækið segist leggja áherslu á að veita fjölskyldum upplýsingar og aðstoð meðan á innköllunarferlinu stendur.