8. september 2026

Hekla innkallar Skoda

8. september 2026

Hekla innkallar Skoda

Innköllun

HMS barst tilkynning frá Heklu um innköllun á Skoda Fabia, Octavia, Superb og Kodiaq af árgerð 2017-2018.

Er um að ræða svokallaða Takata innköllun þar sem við árekstur getur loftpúði skotið út málmflísum sem valda lífshættulegum áverkum. Mun Hekla skoða loftpúða og skipta út þeim sem eru gallaðir.

Eru eigendur slíkra ökutækja beðnir um að hafa samband við Heklu og panta tíma ef innköllun hvílir á bílnum.

Deildu

Nýjar tilkynningar

Leikföng

Tilkynning

3. júlí 2026

Innköllun í Bretlandi á leikfanginu Squeezy Dumplings

HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni. Bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni og getur valdið skemmdum á erfðaefni. Því er mikilvægt að draga úr allri ónauðsynlegri útsetningu fyrir efninu, sérstaklega hjá börnum. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi. Útsetning fyrir miklu magni getur einnig valdið sviðatilfinningu í meltingarvegi og ertingu í húð. Dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi er Samsons Cash and Carry Ltd. Á vörunni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi, en gera má ráð fyrir að hún geti verið í umferð hérlendis, til dæmis vegna kaupa erlendis eða í gegnum netverslanir. Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust. Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það. Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu breskra yfirvalda í tengli hér fyrir neðan.